Viðskipti erlent

Lagarde hættir snemma sem seðla­banka­stjóri

Samúel Karl Ólason skrifar
Christine Lagarde hefur sagt að hún vilji koma með einhverjum hætti að forsetakosningum í Frakklandi á næsta ári. Þá er talið að hún myni taka að sér stjórn Alþjóðaefnahagsráðsins.
Christine Lagarde hefur sagt að hún vilji koma með einhverjum hætti að forsetakosningum í Frakklandi á næsta ári. Þá er talið að hún myni taka að sér stjórn Alþjóðaefnahagsráðsins. AP/Michael Probst

Christine Lagarde, forseti Seðlabanka Evrópu, hefur sagt upp og mun láta af störfum í febrúar. Það er átta mánuðum áður en átta ára kjörtímabili hennar lýkur. Orðrómur um að hún ætli að láta af störfum hefur verið á kreiki um nokkurra mánaða skeið og hafa líkur verið leiddar að því að hún ætli að hefjast störf hjá Alþjóðaefnahagsráðinu (World economic forum).

Lagarde hefur einnig sjálf gefið til kynna að hún vilji koma með einhverjum hætti að forsetakosningum í Frakklandi, heimalandi sínu, á næsta ári. Hún segist þó ekki stefna á framboð, eins og fram kemur í grein Wall Street Journal.

Í ávarpi sem hún birti á Facebook í morgun sagði Lagarde að það hafi verið mikil forréttindi að fá að stýra Seðlabanka Evrópu á undanförnum árum. Hún telur sig hafa staðið sig vel í starfi.

Seðlabanki Evrópu mun seinna í dag tilkynna nýja vaxtastefnu og í kjölfarið mun Lagarde halda blaðamannafund. Mörg ríki Evrópu eiga þessa dagana í vanda með að takast á við verðbólgu, skuldasöfnun, hækkandi orkukostnað og sífellt auknar efnahagsáhyggjur.

Í frétt Reuters segir að búist sé við því að á eftir verði tilkynnt að vextir verði óbreyttir í 2,5 prósentum og að gefið verði til kynna að vextir verði hækkaðir á næstunni og þá mögulega í desember.

​António Costa, forseti Leiðtogaráðs Evrópusambandsins, tilkynnti afsögn Lagarde. Hún var á árum áður framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann sagði að leitin að arftaka hennar muni hefjast strax í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×