Viðskipti innlent

Skuldar þrota­búi föður síns hundruð milljóna króna til

Árni Sæberg skrifar
Jón Hilmar er viðskiptamaður eins og faðir hans en hann er annar stofnenda nýsköpunarfyrirtæksins Noona.
Jón Hilmar er viðskiptamaður eins og faðir hans en hann er annar stofnenda nýsköpunarfyrirtæksins Noona. Vísir

Félag í eigu Jóns Hilmars Karlssonar, sonar Karls Emils Wernerssonar, hefur verið dæmt til að greiða tortólsku félagi í eigu þrotabús Karls Emils um 340 milljónir króna auk dráttarvaxta allt aftur til ársins 2018. Jón Hilmar hefur áður verið dæmdur til að greiða þrotabúinu fleiri milljarða króna.

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm þess efnis á mánudag. Í honum segir að félagið Nordic Pharma Investment Ltd. á Tortóla á Bresku jómfrúareyjunum hafi höfðað mál á hendur Toska ehf. til greiðslu skuldar samkvæmt tveimur skuldabréfum, sem gefin voru út árið 2012 í tengslum við svokallaða fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands. Annað skuldabréfið var að fjárhæð 90 milljónir króna og hitt 150 milljónir króna.

Fjárfestingarleið Seðlabankans var liður í því að losa um fjármagnshöft eftir bankahrunið árið 2008 og fólst í því að kallað var eftir tilboðum um sölu á erlendum gjaldeyri í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Karl Emil sótti samkvæmt dómnum um að taka þátt í fjárfestingarleiðinni og keypti í framhaldinu skuldabréf af íslensku félagi sínu, Toska ehf., í gegnum aflandsfélagið Nordic Pharma Investment.

Afsalaði báðum félögum í aðdraganda gjaldþrots

Karl Emil afsalaði Toska ehf. til Jóns Hilmars sonar síns með kaupsamningi dagsettum árið 2014 og varð gjaldþrota árið 2018. Því afsali hefur verið rift með dómi árið 2024. Félagið er þó enn í fullri eigu Jóns Hilmars þar sem afsali þess til þrotabús Karls Emils varð ekki komið við og Jón Hilmar var þess í stað dæmdur til að greiða þrotabúinu 2.652.753.000 krónur með dráttarvöxtum frá 19. janúar árið 2019. Með vöxtum er ekki óvarlegt að reikna með að heildargreiðsla nemi um fimm milljörðum króna.

Þá afsalaði Karl Emil Nordic Pharma Investment til sambýliskonu sinnar Gyðu Hjartardóttur árið 2018, rétt áður en hann varð gjaldþrota. Í dóminum segir að þrotabúið hafi gert samning við Gyðu um að ekki yrði krafist riftunar á afsalinu, gegn því að hún ábyrgðist að Nordic Pharma Investment væri eignalaust félag, að frátalinni einni kröfu í þrotabú Háttar ehf., sem hafði verið í eigu Karls Emils.

Eftir að skiptastjóri komst á snoðir um skuldabréf þau sem um var tekist í málinu sem hér er um rætt hafi hann krafist riftunar á afsalinu og félagið eignaðist félagið í kjölfar dóms árið 2024.

Vísaði ekki til nokkurra haldbærra gagna

Í dóminum segir að Toska ehf. hafi helst borið fyrir sig að kröfuréttur samkvæmt skuldabréfunum tveimur hefði verið gefinn eftir af Nordic Pharma Investment árið 2013. Skuldin hafi hins vegar ekki verið færð niður í bókum félagsins á þeim tíma vegna tiltekinna skilmála í útgáfulýsingu skuldabréfanna.

Í niðurstöðu dómsins hvað þá málsástæðu varðar segir að Toska hafi ekki getað vísað til nokkurra haldbærra skjala eða annarra gagna sem styðja málatilbúnað þess heldur byggist hann fyrst og fremst á sjónarmiðum um að athafnir, viðhorf og hvatir þáverandi og núverandi fyrirsvarsmanna félagsins beri með sér að báðir aðilar málsins hafi litið svo á að skuldin hafi verið gefin eftir. Hvorugur þeirra hafi komið fyrir dóm og svarað spurningum um þessi málsatvik. 

„Þegar lagt er heildstætt mat á þau sjónarmið og gögn sem rakin hafa verið verður ekki talið að stefnda hafi tekist að axla þá sönnunarbyrði sem á honum hvílir og með því sýnt fram á að aðilar þessa máls hafi gert samkomulag um eftirgjöf skuldarinnar eða að hún hafi með öðrum hætti verið gefin eftir. Málatilbúnaði stefnda um að umþrætt krafa samkvæmt skuldabréfunum tveimur á stefnda hafi verið gefin eftir er þess vegna hafnað.“

Vextir fyrndir að hluta

Dómurinn féllst þó á varakröfu Toska þess efnis að óuppgerðir vextir af þremur gjalddögum skuldabréfanna árin 2018, 2019 og 2020 hefðu verið fyrndir og því skyldi lækka kröfur Nordic Pharma Investment um það sem því nemur.

Nordic Pharma Investment krafðist þess að Toska yrði annars vegar gert að greiða 165 milljónir króna auk nánar tilgreindra dráttarvaxta vegna annars skuldabréfsins og 275 milljónir króna vegna hins.

Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, sem var fjölskipaður, var að Toska skyldi greiða 127,5 milljónir og 212,5 milljónir vegna skuldabréfanna tveggja, auk nánar tilgreindra dráttarvaxta, sem ná lengst til ársins 2018. Því má ætla að endanleg greiðsla verði miklum mun hærri en 340 milljónir króna.

Þá var Toska gert að greiða 2,5 milljónir króna í málskostnað. Dóm Héraðsdóms Reykjavíkur má lesa hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×