Viðskipti innlent

Fella niður 1,4 milljarða sekt Lands­virkjunar

Kjartan Kjartansson skrifar
Landsvirkjun skýtur föstum skotum að Sammkeppniseftirlitinu í yfirlýsingu eftir að áfrýjunarnefnd felldi úr gildi milljarða sektarátkvöðrun.
Landsvirkjun skýtur föstum skotum að Sammkeppniseftirlitinu í yfirlýsingu eftir að áfrýjunarnefnd felldi úr gildi milljarða sektarátkvöðrun. Vísir/Vilhelm

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi 1,4 milljarða króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á Landsvirkjun vegna sölu á raforku til Landsnets. Landsvirkjun segir niðurstöðuna staðfesta að ekki hafi steinn staðið yfir steini í rannsókn Samkeppniseftirlitsins.

Úrskurður áfrýjunarnefndarinnar hefur ekki verið birtur opinberlega. Samkeppniseftirlitið lagði sektina á Landsvirkjun í fyrra þar sem það taldi ríkisorkufyrirtækið hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína á raforkumarkaði með alvarlegum hætti.

Í yfirlýsingu Landsvirkjunar um úrskurðinn í dag segir að Samkeppniseftirlitið hafi ekki skilgreint markaði á fullnægjandi hátt í ákvörðun sinni frá því í fyrra og ekki gert viðhlítandi rannsókn á hvernig Landsvirkjun hefði hamlað samkeppni.

Málið hafi því ekki verið að fullu upplýst þegar Samkeppniseftirlitið tók ákvörðun sína. Málsmeðferðin hefði þannig ekki uppfyllt kröfur rannsóknarreglu stjórnsýslulaga.

Samkeppniseftirlitið segir að áfrýjunarnefndin hafi vísað málinu til nýrrar meðferðar hjá eftirlitinu. Nefndin hafi talið að rannsaka þyrfti ákveðin atriði nánar áður en unnt væri að taka efnislega afstöðu til þess hvort að Landsvirkjun hefði misnotað stöðu sína.

Kvörtuðu vegna þátttöku Landsvirkjunar í útboði

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins snerist um þátttöku Landsvirkjunar í útboði Landsnets á raforku til þess að bæta upp flutningstap. 

Orka náttúrunnar og N1 rafmagn kvörtuðu til Samkeppniseftirlitsins vegna þess. Þau keyptu raforku af Landsvirkjun samkvæmt verðskrá. Landsvirkjun hafi síðan boðið lægra verð í útboði Landsnets. Því töldu fyrirtækin sem kvörtuðu sig ekki hafa átt möguleika í útboðinu nema þau seldu orku með tapi.

Landsvirkjun segir í yfirlýsingu sinni í dag að aukin markaðshlutdeild hefði ekki verið markmið fyrirtækisins með því að taka þátt í útboði Landsnets heldur að tryggja að nægt framboð væri á raforku til flutningstaps og þar með raforkuöryggi.

Samkeppniseftirlitið segir í sinni yfirlýsingu að áfrýjunarnefndin hafi ekki talið nægja að byggja niðurstöðu um ólögmætan verðþrýsting eingöngu á samanburði á tilboðsverði Landsvirkjunar og heildsöluverði hennar á grunnorku við lok útboðsfresta.

Eftirlitið segist ætla að fara yfir úrskurðinn og afla sjónarmiða aðila á markaðnum og annarra stjórnvalda á evrópska efnahagssvæðinu. Að því loknu taki eftirlitið ákvörðun um hvort það beri úrskurðinn undir dómstóla eða taki nýja ákvörðun í málinu.

Fréttin var uppfærð eftir að yfirlýsing Samkeppniseftirlitsins um úrskurðinn barst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×