Enski boltinn

„Hann kvartar yfir öllu“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Bruno Fernandes og stælar hans innan vallar voru til umræðunni í Messunni. Eiður Smári veltir því upp hvort United-menn séu komnir með leið á Portúgalanum.
Bruno Fernandes og stælar hans innan vallar voru til umræðunni í Messunni. Eiður Smári veltir því upp hvort United-menn séu komnir með leið á Portúgalanum. Getty/Sýn

Eru stuðningsmenn Manchester United komnir með nóg af stanslausu tuði stjörnuleikmannsins Bruno Fernandes? Eiður Smári Guðjohnsen velti því upp í Messunni.

Manchester United hefur aðeins fengið sjö stig í fyrstu sjö leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Liðið gerði 1-1 jafntefli við Leeds þar sem Bruno Fernandes, sem hefur verið besti leikmaður liðsins undanfarin ár, átti ekkert sérstakan leik.

Líkamstjáning hans gaf þá til kynna að hann nyti sín ekki mjög á vellinum og hann tuðaði yfir mörgu, líkt og iðulega er hjá Portúgalanum.

Klippa: „Eru menn bara orðnir aðeins þreyttir á honum?“

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrverandi leikmaður Chelsea, var spurður að því í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport hvernig hann læsi í líkamstjáningu Fernandes á vellinum.

„Ég veit ekki með þau sem eru nýbyrjuð að fylgjast með United og ensku úrvalsdeildinni. Er þetta eitthvað sem kemur okkur á óvart sem eru búin að fylgjast með þessu undanfarin ár?“ spyr Eiður Smári.

„Hann er alltaf svona. Hann kvartar yfir öllu, að hann fái ekki sína aukaspyrnu eða gefi frá sér aukaspyrnuna. Hann kvartar alltaf. Við vitum að hann hefur alltaf stigið upp í sínu hlutverki hjá United undanfarin ár hvað tölfræði varðar sem einstaklingur,“ segir Eiður og bætir við:

„Ég er meira farinn að hugsa: Eru menn bara orðnir aðeins þreyttir á honum? Ekki bara við sem erum hérna að horfa á hann hlutlaus. Meira að segja United-fólk, þetta hlýtur að vera bara: Heyrðu, hann neglir einn niður, veit að hann er að fá gult spjald.“

„Hann er hugsanlega að ögra dómaranum í það að gefa sér annað gult spjald í þessum leik. Og það er svo mikið í gangi í kringum hann, hvort að menn séu ekki bara orðnir aðeins þreyttir á þessari athygli sem að hann þarf inni á vellinum,“

„Því þegar hann er upp á sitt besta er algjör unun að horfa á hann spila fótbolta, en þegar hann er það ekki þá er svo mikil athygli sem að fer á hann í alls konar sem að skiptir leiknum engu máli,“ segir Eiður Smári.

Umræðuna má sjá í spilaranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×