Enski boltinn

Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum

Andri Broddason skrifar
Morgan Gibbs-White hefur ógnað með hraða sínum á fótboltavellinum en er sektaður fyrir það í umferðinni.
Morgan Gibbs-White hefur ógnað með hraða sínum á fótboltavellinum en er sektaður fyrir það í umferðinni. Molly Darlington/Getty Images

Morgan Gibbs-White, leikmaður Nottingham Forest, hefur verið sektaður eftir að bíll í hans eigu keyrði yfir á rauðu ljósi. Hann hefur verið sektaður um þúsund bresk pund eða yfir 160 þúsund íslenskra króna.

Bifreið Gibbs-White var tekin af umferðamyndavél þar sem hann fór yfir gatnamót 1,1 sekúndu eftir að rauða ljósið kviknaði. Þrátt fyrir að það sæist á myndavélinni að bifreiðin væri í eigu Gibbs-White þá var ekki víst að hann hefði keyrt bílinn.

Lögreglan sendi nokkur bréf heim til Gibbs-White en samkvæmt BBC var þeim ekki svarað og því var Gibbs-White gerður sekur fyrir brotið. Þegar lögregla skoðaði málið þá var þó ekki sama bílnúmer á bílnum sem var tekinn með myndavélinni og bifreið Gibbs-White. Það munaði einum staf á bílnúmerunum og því ekki víst að þetta væri Gibbs-White eftir allt saman.

Lögreglan stöðvaði loks bíl Gibbs-White í umferðinni og gat þá staðfest að bíllinn væri í eigu Gibbs-White og að hann þyrfti að borga sektina. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gibbs-White lendir í vandræðum í umferðinni þar sem á síðasta ári var hann sviptur ökuréttindum í þrjá mánuði fyrir að aka ítrekað of hratt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×