Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Aron Guðmundsson skrifar 18. október 2026 17:23 Madueke fagnar marki sínu ásamt Declan Rice Vísir/Getty Noni Madueke reyndist hetja Englandsmeistara Arsenal í 1-0 sigri liðsins gegn Nottingham Forest á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það var hart barist á City Ground, heimavelli Nottingham Forest, í dag líkt og hefur verið raunin í undanförnum leikjum liðanna á þessum velli. Englandsmeistararnir þurftu sigur til að halda í við topplið Manchester City og sigurmark leiksins lét bíða eftir sér. Þegar komið var fram á 80. mínútu barst boltinn til Noni Madueke, sem hafði komið inn á sem varamaður í upphafi seinni hálfleiks, inn á vítateig Nottingham Forest. Eftir létta gabbhreyfingu lét hann vaða í átt að marki. Þaðan hafði boltinn viðkomu í varnarmanni Forest og endaði í netinu. Reyndist þetta mark sem tryggði Arsenal afar dýrmæt þrjú stig og dramatískan sigur. Með sigrinum er Arsenal áfram í 2. sæti deildarinnar með átján stig, þremur stigum minna en topplið Manchester City. Nottingham Forest er í 18. sæti og er með fimm stig eftir fyrstu sjö leiki sína. Enski boltinn Fótbolti Arsenal FC Nottingham Forest