Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Samúel Karl Ólason skrifar 18. september 2026 06:17 Það virðist sem lögreglulþjónar hafi staðið í ströngu í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Viktor Freyr Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um mann sem réðst á annan og ógnaði honum með hníf. Að því loknu ók hann á brott. Lögregluþjónar fundu hann í umferðinni og hófst þá eftirför, sem endaði með því að taka þurfti manninn úr umferð með því að aka á bíl hans, samkvæmt lögreglunni.
Maðurinn slóst síðan við lögregluþjóna sem handtóku hann en hann var handtekinn og færður í fangaklefa. Þá barst einnig tilkynning um að flugeld hafði verið kastað inn í bíl. Fólk var í bílnum þegar öðrum bíl, sem ku hafa verið fullur af ungmennum, kom þar upp að og var flugeld kastað inn í fyrri bílinn. Þar sprakk hann og hlutu farþegar og ökumaður tjón af og bíllinn skemmdist. Í dagbók lögreglu segir að leitað hafi verið að hinum bílnum en hann hafi ekki fundist í gærkvöldi eða nótt. Starfsmenn Bráðamóttökunnar óskuðu eftir aðstoð lögreglu vegna ungmennis sem þangað leitaði eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás. Það mál er í rannsókn. Annað mál sem er í rannsókn snýr að því að öryggisvörður tilkynnti lögreglunni um slagsmál þar sem annar sem tók þátt í þeim ógnaði hinum með grjóti. Báðir voru farnir af vettvangi þegar lögregluþjóna bar að garði. Lögreglunni bárust í gærkvöldi og í nótt allavega fjórar tilkynningar um innbrot. Í einu tilfelli hafði einhver farið inn á heimili og stolið þaðan verðmætum á meðan íbúar sváfu. Í öðru tilfelli var brotist inn í fyrirtæki en engar skemmdir voru unnar og engu var stolið. Í enn einu tilfelli var um að ræða eiganda íbúðarinnar sem hafði læst sig úti en nágranni hafði tilkynnt innbrot þegar hann sá eigandann fara inn um glugga.
Lögreglumál Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Fleiri fréttir Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ Sjá meira