Innlent

Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lög­reglu

Samúel Karl Ólason skrifar
Það virðist sem lögreglulþjónar hafi staðið í ströngu í gærkvöldi og í nótt.
Það virðist sem lögreglulþjónar hafi staðið í ströngu í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Viktor Freyr

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um mann sem réðst á annan og ógnaði honum með hníf. Að því loknu ók hann á brott. Lögregluþjónar fundu hann í umferðinni og hófst þá eftirför, sem endaði með því að taka þurfti manninn úr umferð með því að aka á bíl hans, samkvæmt lögreglunni.

Maðurinn slóst síðan við lögregluþjóna sem handtóku hann en hann var handtekinn og færður í fangaklefa.

Þá barst einnig tilkynning um að flugeld hafði verið kastað inn í bíl. Fólk var í bílnum þegar öðrum bíl, sem ku hafa verið fullur af ungmennum, kom þar upp að og var flugeld kastað inn í fyrri bílinn. Þar sprakk hann og hlutu farþegar og ökumaður tjón af og bíllinn skemmdist.

Í dagbók lögreglu segir að leitað hafi verið að hinum bílnum en hann hafi ekki fundist í gærkvöldi eða nótt.

Starfsmenn Bráðamóttökunnar óskuðu eftir aðstoð lögreglu vegna ungmennis sem þangað leitaði eftir að hafa orðið fyrir líkamsárás. Það mál er í rannsókn.

Annað mál sem er í rannsókn snýr að því að öryggisvörður tilkynnti lögreglunni um slagsmál þar sem annar sem tók þátt í þeim ógnaði hinum með grjóti. Báðir voru farnir af vettvangi þegar lögregluþjóna bar að garði.

Lögreglunni bárust í gærkvöldi og í nótt allavega fjórar tilkynningar um innbrot. Í einu tilfelli hafði einhver farið inn á heimili og stolið þaðan verðmætum á meðan íbúar sváfu. Í öðru tilfelli var brotist inn í fyrirtæki en engar skemmdir voru unnar og engu var stolið.

Í enn einu tilfelli var um að ræða eiganda íbúðarinnar sem hafði læst sig úti en nágranni hafði tilkynnt innbrot þegar hann sá eigandann fara inn um glugga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×