Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Agnar Már Másson skrifar 18. september 2026 16:00 Stefán Karl reif upp þriggja lítra flösku er hann fór með málflutning sinn. Hann segist hafa fundið hana á Jómfrúnni. Einnig vísaði hann í orð Kamölu Harris, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. Samsett Mynd Verjendur Sævars Arnars Hilmarssonar og Kastriot Pepaj krefjast sýknu af ákæru um fíkniefnaflutning enda sé ósannað að þeir séu hinir svokölluðu „Cloud“ og „Milan“. Ákæruvaldið fer fram á átta og hálfs árs fangelsi yfir þeim. Verjandi Sævars notaðist við stóra bjórflösku sem leikmun í málflutningi sínum.
Í dag er lokadagur í réttarhöldum í Dettifossmálinu svokallaða, þar sem Sævar og Kastriot eru ásamt tveimur ungum skipverjum á gámaskipinu Dettifossi sakaðir um að skipuleggja innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínvökva. Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Sævars Arnars, sagði í málflutningi sínum að hann færi fram á sýknu í þeim ákærulið er varðaði fíkniefnainnflutning og krafðist vægustu refsingar í þeim liðum sem Sævar hafði játað sök, svo sem vopnalagabrot. Stefán sagði að ekki væri sannað að Sævar væri umræddur „Cloud“ sama hvað ákæruvaldið gæfi sér. Cloud var dulnefni aðila sem átti í Signal-samskiptum við skipverjana tvo sem fluttu meinta amfetamínvökvann frá Bremerhaven í Þýskalandi til Íslands. Sömuleiðis tók Stefán fram að lögregla hafi ekki sýnt Sævari Cloud-símann, sem er sími sem fannst á heimili hans og er sagður skráður inn á Signal-reikning Cloud. Hann sagði það einnig sæta furðu að ákæruvaldið gerði kröfu um upptöku á hinum ýmsu munum, meðal annars Rólex-úri, lúxustösku og mótorhjóli, á þeim grundvelli að um sé að ræða ávinning af broti. Vinir hans útskýrðu fyrir dómi í dag að um væri að ræða gjafir eða vörur sem hann hafi keypt sjálfur, jafnvel fyrir einhverjum árum. Verjendur, frá vinstri, Sveinn Andri Sveinsson, Stefán Karl Kristjánsson, Unnsteinn Örn Elvarsson, Leó Daðason, og Jón Bjarni Kristjánsson. Sá síðarnefndi er verjandi konu sem sætir aðeins upptökukröfu í málinu.Vísir „Það er stórundarlegt að fylgjast með því hvernig ákæruvaldið hagar sínum málum,“ sagði hann og tók fram að fjármögnun innflutningsins hefði ekki verið rannsökuð af hálfu lögreglu. Hann sagði það sæta furðu að lögregla hefði lagt hald á vog og hafnaboltakylfu. Þá vísaði Stefán Karl í orð Kamölu Harris, fyrrverandi varaforseta í Bandaríkjunum: „Vandamálið við að rétta ákæruvaldinu hamar er að þá sér það nagla alls staðar.“ Carlsberg-flaskan Fram hafði komið við skýrslutöku skipverjanna að þeir teldu að þær flöskur sem þeir tóku á móti í Bremerhaven hefðu verið þrjár þriggja lítra flöskur auk einnar eins lítra flösku, sem myndi alls gera tíu lítra. Annar skipverjinn kvaðst kannast við slíkar flöskur enda hefði hann áður keypt slíkar í verslun í Bremerhaven. Sömuleiðis sögðu skipverjarnir að þær flöskur sem þeir tóku á móti í Þýskalandi hefðu allar nema ein verið ómerktar og glærar, en á mynd sem sýnd var fyrir dómi voru allar fjórar flöskurnar, sem innihéldu gylltan vökva, merktar vodkavörumerkinu Absolut. Þetta rak Stefán Karl og minntist svo á að hann hefði sjálfur farið á veitingastaðinn Jómfrúna í gær. Þar hefði hann komið auga á áhugaverðan hlut. „Ég sá flösku,“ hrópaði hann þá og tók síðan stóra, græna Carlsberg-bjórflösku undan borðinu og lagði á pontuna. Þungt högghljóð heyrðist þegar glerbotn ílátsins lenti á ræðupúltinu. „Þetta eru þrír lítrar,“ bætti hann svo við og ítrekaði það sem skipverjarnir höfðu sagt; að þeir hefðu tekið á móti um tíu lítrum. Stefán Karl hefur ítrekað spurt vitni hvort hægt sé að koma fjórtán lítrum af amfetamínbasa í ílát sem eru samtals tíu lítrar, en lögreglumaður svaraði því á þá leið fyrir dómi að það væri ekki hægt, en það væri aftur á móti rangt að aðeins væri um að ræða tíu lítra, heldur 14,1 lítra. Hann gagnrýndi rannsókn lögreglu harðlega og sagði illa hafa verið haldið utan um sönnunargögn, ekki síst hvað flöskuna varðaði. Sömuleiðis hafi lífssýni ekki verið tekin af Cloud-símanum svokallaða sem lögregla taldi vera Sævars. Engin skoðun hafi verið gerð um hugsanleg kaup á brennisteinssýru, sem kynni þá að vísa til þess að hann hyggðist gera amfetamínsúlfat úr vökvanum, Sameiginlegur ásetningur ekki legið fyrir Leó Daðason lögmaður, verjandi Kastriot, sagðist krefjast sýknu af öllum kröfum af skipulagningu innflutningsins. Hann fór sömuleiðis fram á sýknu af vörslu marijúana sem fannst á heimili hans og óskaði hann eftir því að Kastriot yrði ekki gerð refsing vegna vörslu stera sem fundust á heimili hans. Þá verði upptökukröfu á reiðufé og farsímum hafnað. Til vara er óskað vægustu refsingar í öllum liðum. Hann benti á að nafn Kastriots hefði ekki brugðið fyrir í frásögnum skipverjanna af innflutningnum. Þeir hefðu borið fyrir dómi að þeir hefðu ekki hitt hann fyrr en í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði. Hann sagði saksóknarann heldur ekki hafa sannað að Kastriot væri „Milan“ sem átti í samskiptum við skipverjana í gegnum samskiptaforritið Signal. Ákæruvaldið telur Kastriot hafa notast við annan síma en sitt einkasímtæki til þess að eiga í samskiptum á Signal undir nafninu Milan, en sá sími hefur ekki fundist að sögn lögreglu, sem hefur stuðst við myndefni sem sýndi Kastriot í ræktinni og í Minigarðinum, þar sem svo virtist sem hann væri að nota síma sinn á sama tíma og samskipti fóru fram á milli notandans Milan og notandans Cloud. Þetta gagnrýndi Leó. „Það hefur ekki komið neitt beint sönnunargagn í þessu sem sýnir að Kastriot sé notandinn Milan.“ Þá tekur hann fram að rússneskt símanúmer sem var skráð á Milan hafi ekki verið rannsakað. Sömuleiðis væri ekki sannað að sameiginlegur ásetningur hafi legið fyrir sem tengist innflutningnum. „Hann skipulagði ekki ferðina, réð ekki skipverjana, miðlaði engum fyrirmælum sem sannað er að megi rekja til hans,“ sagði Leó.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Dómsmál Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Fleiri fréttir Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ Sjá meira