Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. september 2026 22:23 Sóldís Birta kennir nemendum í öðrum bekk. Samsett/Vísir/Vilhelm Grunnskólakennari telur að íslenskt samfélag hafi misst sjónar á því hvað skólinn standi fyrir. Námið sé aftast í forgangsröðun heimilisins og kallar hún eftir því að foreldrar sýni jafn mikla ástríðu fyrir náminu og á hliðarlínunni á Símamótinu.
Sóldís Birta Reynisdóttir, kennari í öðrum bekk í grunnskóla, telur vanda íslenskra nemenda þegar kemur að lestri vera tvíþættan. Annars vegar sé verið að teygja anga skóladagsins of langt og hins vegar sé námið ekki forgangsraðað heima fyrir. „Fjórða hvert fimmtán ára barn nær ekki grunnviðmiðum í lesskilningi samkvæmt PISA. Það eitt og sér ætti að mínu mati að nægja til þess að við spyrjum okkur hvað er að gerast inni í íslenskum skólastofum,“ sagði Sólveig í myndskeiði sem hún birti á samfélagsmiðlum. Vísar hún þar í nýjar niðurstöður úr PISA-könnun þar sem kom fram að íslenskum nemendum hefur hrakað til muna milli ára. Að mati Sóldísar er íslenskt samfélag búið að missa sjónar á því hvað skólinn stendur fyrir. „Við erum sífellt að bæta við nýjum verkefnum inn í skólana, nýjum áherslum, samfélagslegum átaksverkefnum. Sum eru góð og gild, önnur eru fáránleg. Það breytir því ekki að skóladagurinn er ekki teygjanlegur og þegar við erum að bæta sífellt einhverju við án þess að taka eitthvað annað út þá er óhjákvæmlegt að eitthvað þurfi að víkja og ég er hrædd um að það sé kennslan sem er að víkja,“ segir hún. @soldisbirtaa Skóladagurinn er ekki ótakmarkaður og ábyrgð kennara getur ekki þanist endalaust út. Sama gildir heima fyrir, menntun barna verður ekki eingöngu til innan veggja skólans. Ef námið á að vera forgangsatriði verður það að sjást í forgangsröðuninni, bæði í skólanum og heima 🤗 ♬ original sound - Sóldís Birta Reynisd Sóldís mætti í Reykjavík síðdegis til að ræða málin og bætir því við að fundarseta kennara sé einnig mjög mikil, meira að segja á kennslutíma. „Fyrir utan það þá eru svo margir nemendur inni í einum bekk. Þú ert kannski með 27 nemendur og þú ert eini kennarinn. Fimm eru með einhverjar greiningar, sjö eru með eitthvað annað móðurmál.“ Áhugamálunum forgangsraðað ofar Það sé daglegur viðburður hjá Sóldísi og öðrum kennurum að nemandi mæti í skólann og hafi ekki lesið heima. Heimanám barnanna sé að lesa fimm sinnum í viku í fimmtán til tuttugu mínútur í senn. Ástæðurnar séu oftar en ekki að barnið hafi verið upptekið við að sinna áhugamálum á við fiðlu og fótbolta og síðan hafi foreldrarnir einnig verið uppteknir við áhugamálin eða vinnu. „Við verðum að þora að taka þessa umræðu. Hvar er námið í forgangsröðun heimilisins? Við finnum tíma fyrir fótbolta, tónleika, áhugamál, vinnu og okkar frístundir og allt hefur sinn stað en námið getur ekki verið það sem víkur,“ sagði Sóldís í myndskeiðinu. „Áhugamálin spila náttúrulega rosalega stóran þátt í lífi barnanna og eðlilega, þetta er náttúrulega frábært. En þetta má ekki vera þannig að þetta komi í staðinn fyrir námið. Svo þegar niðurstöður úr náminu koma þá einhvern veginn komum við bara af fjöllum,“ bætti hún við í Reykjavík síðdegis. Hún kallar eftir því að foreldrar barnanna sýni sömu ástríðu fyrir náminu líkt og þau mála sig í framan til að styðja börnin sín á Símamótinu. Sömuleiðis þurfi foreldrarnir að taka þátt í náminu, það eigi ekki að vera kvöð og pína að lesa heima í fimmtán mínútur. Sóldís hefur þó skilning á því að foreldrar séu dauðþreyttir eftir langan dag. „Þau eru búin að vera úti um allar trissur að sækja og skutla á æfingar og ná í þennan og fara á næstu æfingu og allt þetta. Þau eru dauðþreytt líka, eðlilega. En við þurfum líka að læra að forgangsraða, hvað skiptir okkur raunverulega máli?“ Kunni ekki að leiðast Eins og þú segir, það er kannski ekkert sanngjarnt að leggja þetta allt á foreldrana. Sumir vinna langa daga, sumir tala litla íslensku og sumir eiga sjálfir erfitt með lestur. „Það er algjörlega rétt en ef við værum bara að aðstoða þau börn og ekki öll börn. Við erum líka með hérna börn sem eiga bara alíslenska foreldra og jafnvel annað þeirra er ekki að vinna eða er heimavinnandi,“ segir Sóldís og bendir á úrræði Reykjavíkurborgar þar sem börn geta fengið aðstoð við heimavinnu. Annars metur hún svo að það sé skylda foreldra sem eiga börn sem fara í gegnum tíu ára grunnskólanám hér á landi að þau læri íslensku. „Við eigum bara að setja þessa kröfu að fólk tali íslensku.“ Tími sé kominn á að einfalda kerfið. „Kennarar eiga að kenna, foreldrar eiga að fylgja náminu eftir, önnur kerfi þurfa að sinna því sem þau eiga að sinna og börn þurfa að læra að námi fylgi bæði kröfur og ábyrgð. Við getum ekki haldið náminu til hliðar en vonast að námsárangurinn og útkoman verði góð. Forgangsröðunin okkar birtist að lokum í niðurstöðunum og PISA er í raun staðfesting á því,“ sagði Sóldís í myndskeiðinu. Annars valdi nemendur hennar henni ekki áhyggjum. „Þau náttúrulega valda mér kannski ekkert endilega áhyggjum. Þau eru best og ég elska að vera innan um þau,“ segir Sóldís um nemendur sína. „En það sem veldur mér áhyggjum er þetta að geta aldrei látið sér leiðast, að það þurfi alltaf allt að vera komið strax. Þau þekkja ekki þessa tilfinningu að vera einhvers staðar og hugsa, hvað á ég að vera gera núna?“
Skóla- og menntamál PISA-könnun Reykjavík síðdegis Bylgjan Læsi Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Fleiri fréttir Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ Sjá meira