Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Lovísa Arnardóttir skrifar 20. ágúst 2026 07:14 Það verða aðeins um ellefu gráður í dag þar sem svalast er en 18 þar sem hlýjast er. Vísir/Anton Brink Í dag er spáð vestlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s og bjart að mestu, en víða skýjað við ströndina vestan- og austanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að hæðarhryggur liggi yfir landinu í dag frá hæð suðvestur í hafi og verði því yfirleitt fremur hægar vestlægar eða breytilegar áttir ríkjandi og víða líkur á þokulofti, einkum með fram strandlengjunni. Hitatölur verða samkvæmt því, á bilinu 11 til 18 stig, hlýjast inn til landsins, en svalast í þokuloftinu. Lægð nálgast landið Á morgun, föstudag, nálgast lægð landið úr vestri, með kalda eða strekkingi og smá vætu vestanlands. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings eykst smám saman úrkoma þegar líður á kvöldið, en annars áfram milt. Hægari vindur og úrkomulítið verður austanlands fram eftir deginum, en dálítil væta með kvöldinu þegar veðraskilin færast yfir landið. Lægðin fjarlægist norðurströndina aðfaranótt laugardags, en þá nálgast okkur önnur lægð úr suðvestri og á laugardag er útlit fyrir heldur ákveðna og vætusama suðvestanátt og heldur kólnandi veður. Yfirleitt hægari vindur og úrkomuminna norðaustanlands. Á sunnudag ætti að stytta upp víða sunnan- og vestanlands, en útlit er fyrir rigningu með köflum austanlands og strekkingi vestanlands fram á mánudag. Nánar um veður á vef Veðurstofu og færð vega á vef Vegagerðar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðvestlæg átt 3-10 m/s, en kaldi eða strekkingur norðvestanlands. Dálítil væta á vestanverðu landinu, en annars skýjað með köflum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast fyrir austan. Hvessir og bætir í rigningu vestanlands um kvöldið. Á laugardag: Suðvestan 5-13 m/s og rigning eða súld, einkum á Suðvesturlandi, en úrkomuminna austanlands. Hiti 7 til 16 stig, svalast norðvestanlands. Á sunnudag: Norðlæg átt 5-13 m/s og skúrir eða rigning, einkum sunnanlands, en úrkomulítið vestanlands. Hiti 6 til 14 stig, mildast sunnanlands. Á mánudag: Útlit fyrir fremur ákveðna norðaustlæga átt, einkum með Suðausturströndinni, og rigningu austanlands, en stöku skúrir sunnan til. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Útlit fyrir austlæga átt með rigningu, en styttir víða upp með kvöldinu. Hiti 7 til 16 stig, mildast suðvestanlands. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðaustlægar áttir, dálitla vætu í flestum landshlutum og milt veður.
Veður Færð á vegum Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira