Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 12:27 Ragnar Árnason, prófessor emerítus, til vinstri og Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, til hægri. Samsett Ragnar Árnason, prófessor emerítus við Háskóla Íslands, sakar rektor um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar til þjóðarinnar um Ísland og Evrópusambandið með færslu fyrirhugaðs fyrirlesturs dr. Carls Baudenbacher. Rektor Háskóla Íslands segir að sérstakar reglur gildi um hátíðarsal háskólans en að fyrirlestrinum standi annar salur til boða. Fyrirhugaður fyrirlestrur Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur verið færður úr hátíðarsal Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn á að halda 10. ágúst næstkomandi. Ástæðan mun vera sú að fyrirlesturinn var álitinn of pólitískur. Í yfirlýsingu Ragnars, eins þeirra sem koma að skipulagningu fyrirlestursins, segir að fyrirhugaður fundur sé í samræmi við umsókn um leigu á hátíðarsalnum og að ekki hafi verið um neinar falskar forsendur að ræða. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir í samtali við fréttastofu að í auglýsingu fundarins sem birtist í Morgunblaðinu standi mjög skýrt merki annars vegar fyrirtækis og hins vegar samtaka. „Það er því ekki hægt að túlka það öðruvísi en að þessir aðilar standi að skipulagninu fundarins,“ segir Silja Bára. Á heilsíðuauglýsingu fyrir fundinn sem birtist í Morgunblaðinu sést merki samtakanna Áfram Ísland. Samtökin berjast fyrir því að landsmenn segi „nei“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Jafnframt stæði Almenna bókafélagið fyrir viðburðinum, sem og Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun. Standi til boða að halda fundinn í Öskju „Opinberir fyrirlestrar í HÍ eru misjafnlega sóttir. Fyrir kemur að þeir vekja almenna athygli og er þá ekki óalgengt að félagasamtök og aðrir aðilar hvetji fólk til að sækja þá og jafnvel auglýsi. Það merkir hins vegar ekki að þeir haldi fundinn eða hafi leigt fundarsalinn,“ segir í yfirlýsingu Ragnars. Reglur um útleigu hátíðarsals Háskóla Íslands séu mjög skýrar: Hann sé ekki leigður til félagasamtaka. „Aðilar innan skólans geta leigt salinn en í umsókninni kemur ekki fram að samstarfsaðilar séu til staðar,“ segir Silja Bára. Í yfirlýsingu Ragnars lætur hann umsóknina fylgja með sem er svohljóðandi: Umsókn Ragnars: „Ég ásamt samstarfsfólki í hagfræðideild og lagadeild hef hug á að fá hátíðarsal HÍ til leigu mánudaginn 10.08 nk. kl. 16-18:00. Tilefnið er að Carl Baudenbacher fyrrverandi forseti EFTA dómstólsins hefur fallist á að halda opinberan fyrirlestur hér á landi um málefni ESB. Vafalaust er að þessi fyrirlestur hefur sterka skírskotun til lögfræði, hagfræði og stjórnmálafræði. Fyrirlesturinn fer fram með venjulegum hætti. Baudenbacher talar í ca. 45 mín. Hann svarar síðan fyrirspurnum og athugasemdum í 15-30 mín. eftir atvikum.“ Ragnar er nokkuð harðorður í garð rektorsembættisins og segir að með riftun leigusamningsins sé „rektorsembættið að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar til þjóðarinnar um ESB og Ísland.“ Erfitt sé að sjá hvernig það samrýmist hlutverki Háskólans. Silja Bára segir aftur á móti að þeim sem komi að skipulagninu viðburðarins standi annar salur á vegum Háskólans til boða sem ekki hafi sömu merkingu og hátíðarsalurinn. „Við höfum boðið þeim Öskju, 150 manna sal. Þannig upplýsingamiðlun getur farið fram algjörlega óháð öllu sem hann er að segja.“ Þeir sem standi fyrir fundinum hafi ekki samþykkt það tilboð enn. Háskólar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Sjá meira
Fyrirhugaður fyrirlestrur Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur verið færður úr hátíðarsal Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn á að halda 10. ágúst næstkomandi. Ástæðan mun vera sú að fyrirlesturinn var álitinn of pólitískur. Í yfirlýsingu Ragnars, eins þeirra sem koma að skipulagningu fyrirlestursins, segir að fyrirhugaður fundur sé í samræmi við umsókn um leigu á hátíðarsalnum og að ekki hafi verið um neinar falskar forsendur að ræða. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir í samtali við fréttastofu að í auglýsingu fundarins sem birtist í Morgunblaðinu standi mjög skýrt merki annars vegar fyrirtækis og hins vegar samtaka. „Það er því ekki hægt að túlka það öðruvísi en að þessir aðilar standi að skipulagninu fundarins,“ segir Silja Bára. Á heilsíðuauglýsingu fyrir fundinn sem birtist í Morgunblaðinu sést merki samtakanna Áfram Ísland. Samtökin berjast fyrir því að landsmenn segi „nei“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Jafnframt stæði Almenna bókafélagið fyrir viðburðinum, sem og Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun. Standi til boða að halda fundinn í Öskju „Opinberir fyrirlestrar í HÍ eru misjafnlega sóttir. Fyrir kemur að þeir vekja almenna athygli og er þá ekki óalgengt að félagasamtök og aðrir aðilar hvetji fólk til að sækja þá og jafnvel auglýsi. Það merkir hins vegar ekki að þeir haldi fundinn eða hafi leigt fundarsalinn,“ segir í yfirlýsingu Ragnars. Reglur um útleigu hátíðarsals Háskóla Íslands séu mjög skýrar: Hann sé ekki leigður til félagasamtaka. „Aðilar innan skólans geta leigt salinn en í umsókninni kemur ekki fram að samstarfsaðilar séu til staðar,“ segir Silja Bára. Í yfirlýsingu Ragnars lætur hann umsóknina fylgja með sem er svohljóðandi: Umsókn Ragnars: „Ég ásamt samstarfsfólki í hagfræðideild og lagadeild hef hug á að fá hátíðarsal HÍ til leigu mánudaginn 10.08 nk. kl. 16-18:00. Tilefnið er að Carl Baudenbacher fyrrverandi forseti EFTA dómstólsins hefur fallist á að halda opinberan fyrirlestur hér á landi um málefni ESB. Vafalaust er að þessi fyrirlestur hefur sterka skírskotun til lögfræði, hagfræði og stjórnmálafræði. Fyrirlesturinn fer fram með venjulegum hætti. Baudenbacher talar í ca. 45 mín. Hann svarar síðan fyrirspurnum og athugasemdum í 15-30 mín. eftir atvikum.“ Ragnar er nokkuð harðorður í garð rektorsembættisins og segir að með riftun leigusamningsins sé „rektorsembættið að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar til þjóðarinnar um ESB og Ísland.“ Erfitt sé að sjá hvernig það samrýmist hlutverki Háskólans. Silja Bára segir aftur á móti að þeim sem komi að skipulagninu viðburðarins standi annar salur á vegum Háskólans til boða sem ekki hafi sömu merkingu og hátíðarsalurinn. „Við höfum boðið þeim Öskju, 150 manna sal. Þannig upplýsingamiðlun getur farið fram algjörlega óháð öllu sem hann er að segja.“ Þeir sem standi fyrir fundinum hafi ekki samþykkt það tilboð enn.
Umsókn Ragnars: „Ég ásamt samstarfsfólki í hagfræðideild og lagadeild hef hug á að fá hátíðarsal HÍ til leigu mánudaginn 10.08 nk. kl. 16-18:00. Tilefnið er að Carl Baudenbacher fyrrverandi forseti EFTA dómstólsins hefur fallist á að halda opinberan fyrirlestur hér á landi um málefni ESB. Vafalaust er að þessi fyrirlestur hefur sterka skírskotun til lögfræði, hagfræði og stjórnmálafræði. Fyrirlesturinn fer fram með venjulegum hætti. Baudenbacher talar í ca. 45 mín. Hann svarar síðan fyrirspurnum og athugasemdum í 15-30 mín. eftir atvikum.“
Háskólar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Fleiri fréttir Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Sjá meira