ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Agnar Már Másson skrifar 7. ágúst 2026 12:43 Heiðrún Lind, framkvæmdastjóri SFS, og Marta Kos, stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Samsett Mynd Stækkunarstjóri Evrópusambandsins vill finna „skapandi lausnir“ fyrir báðar hliðar í hugsanlegum aðildarviðræðum vegna sérstöðu Íslands í sjávarútvegi og landbúnaði. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir samt að „skapandi lausnir“ séu ekki endilega það sama og varanlegar undanþágur.
Eitt helsta bitbein í umræðunni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar 29. ágúst hefur snúið að því hvort Ísland geti haldið yfirráðum yfir sjávarauðlindinni sinni, svo sem með undanþágum frá sjávarútvegssáttmála Evrópusambandsins. Í umfjöllun Politico Brussels Playbook í morgun er haft eftir Mörtu Kos, stækkunarstjóra ESB, að sambandið vilji finna „skapandi lausnir fyrir báðar hliðar“ til að koma til móts við sérstöðu Íslands á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar í hugsanlegum aðildarviðræðum. Hún spáir því að hugsanlegar viðræður geti tekið eitt til tvö ár. Sjá einnig: Fréttir um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður „Sum sérkenni Íslands, einkum hvað varðar sjávarútveg og landbúnað, eru svo einstök að það verður að taka þau með inn í reikninginn,” er haft eftir Kos, sem bætir við: „Ég er viss um að [...] við myndum finna skapandi lausnir sem virða báða aðila.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Marta Kos stækkunarstjóri Evrópusambandsins eftir blaðamannafund í mars.Marta Kos En „skapandi lausnir“ eru ekki það sama og varanlegar undanþágur frá sjávarútvegsstefnu sambandsins, að sögn Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. „Þar er kannski verið að hugsa um þessar skapandi lausnir... út frá grundvallarreglum sambandsins en það má að sjálfsögðu vona,“ segir Heiðrún Lind. Vilja vita hverjar afleiðingarnar eru SFS birti í gær greiningu á áhrifum hugsanlegra aðildarviðræðna en þar segir að liggja þurfi fyrir, áður en kosið verður í ágúst, hverjar afleiðingar af hugsanlegu framsali yfirráða á fiskveiðiauðlindinni gætu orðið og hver markmið Íslands í aðildarviðræðum eru. Bæði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafa sagt að markmið í mögulegum aðildarviðræðum við ESB yrði meðal annars að Ísland héldi yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni. Meðal anars eftir Þorgerði í Financial Times í gær að hún krefðist fullra yfirráða. Heiðrún hljómar samt ekki alveg sannfærð. „Við höfum að sjálfsögðu heyrt frá forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar að til standi að halda fullum yfirráðum yfir sjávarauðlindinni, en svo í viðtölum höfum við séð frávik frá þessu,“ segir Heiðrún. „Það er verið að tala um að við þurfum að semja um deilistofna og reglur um hlutfallslegan stöðugleika. Þetta eru atriði sem fela það í sér að við erum að afsala okkur yfirráðum yfir auðlindinni. Þannig að við teljum að það þurfi að koma skýrar fram fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu hvar þessi rauða lína er og hvað það þýði þegar við segjum að við ætlum að halda fullum yfirráðum.“ Ísland og Svartfjallaland gætu komið saman í pakka Í grein Politico er einnig haft eftir ónefndum embættismanni framkvæmdastjórnar ESB sem segi að miðað við tímalínu Íslands og Svartfjallalands ættu aðildarríkin að fullgilda umsóknir sínar á sama tíma. Fjárhagsstaða Íslands sé það góð að þjóðin myndi í raun greiða meira til sambandsins en hún fengi til baka í styrki. Meðal ríkjanna sem greiða hvað mest en fá hvað minnst eru Þýskaland og Frakkland. Ef verði af aðild Svartfjallalands yrði það eitt fátækasta aðildarríkið, og Ísland eitt ríkasta. Með því að Ísland og Svartfjallaland kæmu á sama tíma inn í sambandið telur embættismaðurinn að Ísland myndi í raun greiða fyrir aðild Svartfjallalands. Tekið skal fram að Heiðrún Lind er stjórnarmaður hjá Sýn, sem á Vísi.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira