Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Áróra L Davíðsdóttir skrifar 29. júlí 2026 07:35 Um verslunarmannahelgina má búast við norðanstrekkingi og vætu fyrir norðan og austan en bjartviðri með köflum og þurrviðri í öðrum landshlutum. Vísir/Vilhelm Spáð er rigningu og súld á köflum á Norður- og Austurlandi í dag en léttskýjuðu og þurrviðri annars staðar á landinu. Hiti verður á bilinu sex til sautján stig, mildast á sunnan- og vestanverðu landinu.
Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að lægð við Færeyjar og hæð við Grænland stýri veðrinu á landinu í dag. Búast megi við rigningu eða jafnvel strekkingi á norðan- og austanverðu landinu en annars hægari vindi og bjartviðri. Spáð er hviðóttum vindi á sunnanverðum Austfjörðum síðdegis, sem getur verið varasamt ökutækjum með vagna í eftirdragi. Spákort fyrir klukkan 14 í dag. Veðurstofa Íslands Á morgun dragi úr norðanáttinni á norðanverðu landinu og en hvessir aftur um kvöldið. Annars verði yfirleitt bjartviðri áfram og svipað veður á föstudag. Veðurspá verslunarmannahelgarinnar bjóði upp á norðanstrekking og vætusamt veður fyrir norðan og austan, en bjart með köflum og þurrviðri í öðrum landshlutum. Á frídegi verslunarmanna er spáð hæglætisveðri með smá skúrum á víð og dreif og áfram mildum hitatölum um mestallt land. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á fimmtudag:Norðlæg átt, 3-10 m/s, væta með köflum á Austurlandi og hiti 7 til 11 stig, en þurrt annars staðar með hita 12 til 19 stig. Styttir upp austantil síðdegis og hvessir heldur um kvöldið.Á föstudag og laugardag:Norðan og norðvestan 5-13 m/s og rigning með köflum, talsverð úrkoma á Norðurlandi, en þurrt að mestu sunnan- og vestanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast syðra.Á sunnudag:Norðan- og norðvestankaldi og dálítil súld eða rigning á Norður- og Austurlandi, en annars yfirleitt léttskýjað. Fremur svalt fyrir norðan, en hlýtt syðra.
Veður Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira