„Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 6. júlí 2026 19:58 Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Halldór Benjamín Þorbergsson héldu báðir tölu á stofnfundinum. Vísir/Sigurjón Fjölsóttur stofnfundur samtakanna Áfram Ísland fór fram síðdegis. Um átta hundruð manns sóttu fundinn og var húsfyllir var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Samkvæmt fyrsta ræðumanni og fundarstjóra, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, hafa á þriðja þúsund skráð sig í samtökin.
Halldór Benjamín var til viðtals í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar ásamt Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrum forseta lýðveldisins. „Það er nú ekki fjölmennur hópur af fyrrverandi forsetum,“ svaraði Ólafur Ragnar þegar fréttamaður Sýnar, Agnar Már Másson, bar undir hann hve óvenjulegt það væri að fyrrverandi forsetar beittu sér í pólitískum málum. „Þetta er þjóðaratkvæðagreiðsla og ég er nú enn þá hluti af þjóðinni. Enda hefur kannski enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég,“ minnti Ólafur á. Salurinn fylltist fljótt. Vísir/Sigurjón „Mér finnst líka að sá sem hefur gegnt þessu embætti beri ábyrgð gagnvart þeim kynslóðum sem færðu okkur sjálfstæðið, færðu okkur fullveldisréttinn, gerðu okkur kleift að byggja upp þetta frábæra samfélag sem við eigum.“ Evrópusambandsaðild fæli alltaf í sér að Ísland gæfi frá sér fullveldi. „Eins og ég rakti í minni ræðu þá snýst þessi atkvæðagreiðsla um hvort það eigi að fórna hluta af því valdi sem við höfum í okkar höndum til stofnana í Evrópusambandinu.“ Þegar Halldór Benjamín er spurður hvort forystumenn hinna nýstofnuðu samtaka hafi ekki getað fundið sér heimili innan þeirra samtaka sem þegar hafa verið stofnuð á nei-hliðinni segir hann að slíkt tal fréttamanns væri allt of neikvætt fyrir hreyfingu sem ætlaði að byggja á jákvæðni. „Við erum að reka jákvæða kosningabaráttu hér. Þetta eru regnhlífarsamtök, hér er hátt til lofts og vítt til veggja. Rakið var í frétt okkar í vikunni sá fjöldi hreyfinga sem upp hafa sprottið frá báðum hliðum. Sagði almannatengill í viðtali að of mörg skilaboð sem berast til kjósenda geti leitt til ákvarðanatregðu þar sem einfaldast þyki að kjósa einfaldlega nei. Ólafur Ragnar lék á alls oddi í ræðu sinni í dag. Vísir/Sigurjón Mikill hugur í meðlimum Halldór segir hin nýju samtök vera regnhlífarsamtök á nei-hliðinni þar sem allir geti fundið sér pláss. „Allar þær hreyfingar sem þú hefur talið upp hér í þessu viðtali eru innan okkar vébanda. Hér er rúm fyrir alla og við gerum ráð fyrir því að hér sé pláss fyrir fleiri landsmenn til að skrá sig.“ Halldór minnir á að samtökin hafi fyrir fáum dögum opnað heimasíðu sína og á þriðja þúsund hafi þegar skráð sig. Mikill hugur sé í meðlimum sem fyrirgeri jafnvel sumarleyfi sínu til að taka þátt í jákvæðri nei-baráttu. „Á þriðja þúsund manna hafa skráð sig til leiks og sagt: Ég er tilbúinn að taka þátt. Ég er tilbúinn að leggja til hliðar þau plön sem ég hafði í sumar til að leggja ykkur liðsstyrk í þessari mikilvægu baráttu.“ Innslagið úr kvöldfréttatíma okkar má sjá hér að neðan.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Félagasamtök Tengdar fréttir Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Almannatengill segir að ef upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu séu óskýrar eða ef á reiki sé um hvað kosið er geti það leitt til aðgerðarleysis að hálfu kjósenda. 3. júlí 2026 22:21 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira
Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Almannatengill segir að ef upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu séu óskýrar eða ef á reiki sé um hvað kosið er geti það leitt til aðgerðarleysis að hálfu kjósenda. 3. júlí 2026 22:21