„Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. júní 2026 12:38 Þegat þátttakan var mest hafi 118 lið tekið þátt á mótinu, í fyrra hafi hins vegar 68 lið tekið þátt og 27 lið hafi tekið þátt í ár. vísir/vilhelm Króksmót ÓB sjötta flokks stúlkna í knattspyrnu var haldið á Sauðárkróki um helgina. Mótsstjóri segir mótið hafa gengið vel en þátttaka hafi þó verið dræmri en síðustu ár. Samkeppni við stærra mót setji strik í reikninginn og óljóst sé hvort að mótið verði haldið að ári.
Tuttugu og sjö lið hafi mætt í ár miðað við ríflega hundrað lið undanfarin ár á Króksmótið á Sauðárkróki. Ástæða minni þáttöku undanfarin tvö sumur sé meðal annars samkeppni við N1-mótið á Akureyri, en mótið verður haldið í annað sinn síðar í sumar fyrir sama aldurshóp stúlkna, segir Guðbjörg Óskarsdóttir, mótsstjóri Króksmótsins, í samtali við Vísi. Guðbjörg segir lið og fjölskyldur keppenda yfirleitt velja eitt mót úti á landi yfir sumarið til þess að sækja og það hafi því mikil áhrif á minni mót þegar um sömu keppendur er að ræða. „Þegar stórir aðilar, með mun meira bolmagn, sterka stuðningsaðila og fleiri tekjupósta ákveða að fara í beina samkeppni við lítið félag með rótgróið mót þá er erfitt að standa í lappirnar,“ segir hún í Facebook-færslu um mótið. Hún segir mjög sárt að sjá mót sem haldið hefur verið síðastliðin tuttugu ár fara á þessa leið. Þau stóru vilji meira og ungmennaandinn virðist gleymast á mótunum. „Það er alls konar í þessu sem okkur finnst leiðinlegt, en auðvitað viljum við engan derring á milli. Þetta eru nágrannar okkar og okkur þykir vænt um nágranna okkar og viljum auðvitað halda góðu sambandi,“ segir Guðbjörg. Annars segir Guðbjörg mótið hafa heppnast vel. Veðrið hafi verið leiðinlegt á laugardeginum og kvöldvaka mótsins hefði verið færð innanhúss vegna veðurs en sunnudagurinn hefði verið þurr og gengið vel. Á sunnudeginum hefði einnig verið mót fyrir áttunda flokk stúlkna, svokallað „systkinamót.“ Þar geti yngri iðkendur „fengið medalíu eins og stóra systir.“ Fundaði með mótshöldurum Þröstur Magnússon, formaður Barna- og unglingaráðs Tindastóls, segir að þegar þátttakan hafi verið mest hafi 118 lið tekið þátt á mótinu, í fyrra hafi hins vegar 68 lið tekið þátt og, eins og áður sagði, 27 lið í ár. N1-mótið fyrir sjötta flokk stúlkna hafi verið haldið í fyrsta sinn í fyrra. Þröstur segist hafa fundað með forsvarsmönnum mótsins en að enginn áhugi hafi verið fyrir því að finna sameiginlegar lausnir. „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur.“ Óljóst hvort mótið verði haldið að ári Þröstur segir óljóst hvort að mótið á Sauðárkróki verði haldið að ári liðnu. Stjórn Tindastóls þurfi að endurskoða mótahald hjá sér í haust, tekjumissirinn sé slíkur. Mótið standi ekki undir kostnaði með þennan fjölda þátttakenda. Hann segist ekki vita í hvaða átt verði farið með mótið. Staðan sé ekki góð og að tekjumissirinn hafi áhrif á allan rekstur barna- og unglingastarfs félagsins. N1 er styrktaraðili mótsins á Akureyri og Þröstur segir fyrirtækið leggja gríðarlega fjármuni í mótið. „Við erum að tala um mjög margar milljónir,“ segir hann. Þjálfarar Tindastóls hafi borist fregnir af því að N1-mótið bjóði þjálfurum liða sem komi á mótið ýmis fríðindi, meðal annars hótelgistingu. „Það sem er kannski fúlast við þetta er að það er verið að tæla þjálfara til þess að velja þetta mót á hinum staðnum frekar með einhverjum gylliboðum um hótelgistingar og kvöldverði og einhver lúxusböð.“
Fótbolti Börn og uppeldi Skagafjörður Tindastóll KA Íþróttir barna Akureyri Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira