Skúrir víða um land með strekkingi en lægir í kvöld Lovísa Arnardóttir skrifar 27. maí 2026 07:14 Unnið er að því að byggja nýja brú yfir Fossvoginn. Vísir/Vilhelm Í dag er spáð suðvestlægri átt, 5-13 m/s en hvassari norðvestanlands í fyrstu. Skúrir víða um land, en bjart með köflum og þurrt austantil. Spáð er snjókomu og slyddu til fjalla norðaustantil á landinu á morgun.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að við Skotland sé allmikil hæð sem beini tiltölulega hlýju og röku lofti að landinu. Það muni því ganga á með suðvestankalda eða strekkingi með smáskúrum, en skýjað með köflum og lengst af þurrt fyrir austan. Í kvöld á svo að lægja og þá verður áfram milt á landinu með hita kringum 15 stig eystra þegar best lætur. Hiti verður á bilinu sjö til 15 stig að deginum, hlýjast fyrir austan. Á morgun, fimmtudag, þokast lægðardrag samkvæmt veðurfræðingi upp að Suðausturlandi og snýst þá í norðaustlæga átt, sem mun þá draga kaldara loft inn yfir landið. Þá á að kólna talsvert á norðanverðu landinu og úrkoma til fjalla norðaustantil tekur þá að falla samkvæmt spá sem dálítil slydda eða jafnvel snjókoma. Jafnframt er spáð rigningu með köflum á sunnanverðu landinu, en lengst af þurrviðri á Vesturlandi. Ferðalöngum ráðlagt að fylgjast með Útlit er fyrir svipað veður um helgina og þeim sem eiga mikið undir veðri norðan- og austanlands er því ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám, sem geta breyst með litlum fyrirvara, en spár gera ráð fyrir að fari að hlýna aftur á sunnudag. Vinna við vegaframkvæmdir er víða um land og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar á vinnusvæðum. Best er að skoða nánar veður á vef Vegagerðarinnar og veður á vef Veðurstofu. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Gengur í austan og norðaustan 8-15 m/s með rigningu í flestum landshlutum, en slyddu eða snjókomu til fjalla norðantil, einkum austast á svæðinu. Kólnandi veður og hiti 2 til 12 stig seinnipartinn, hlýjast syðst. Á föstudag: Norðaustan 8-15 m/s og rigning um landið sunnan- og austanvert, snjókoma til fjalla eystra, en annars skýjað og úrkomulítið. Hiti 1 til 10 stig, svalast fyrir norðan. Á laugardag: Austan og norðaustan 5-13 m/s og áfram rigning sunnan- og austantil með slyddu eða snjókomu til fjalla, en þurrt að kalla á Norðvestur- og Vesturlandi. Heldur mildara. Á sunnudag, mánudag og þriðjudag: Austlæg átt, lengst af hæg og dálítil væta, einkum austantil. Hægt hlýnandi veður.
Veður Færð á vegum Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira