Úrkomulítið sunnanlands en skúrir á Austurlandi Lovísa Arnardóttir skrifar 26. maí 2026 07:22 Hiti 7 til 15 stig að deginum, hlýjast austanland Vísir/Vilhelm Í dag er spáð vestan og suðvestan fimm til þrettán metrum á sekúndu. Skúrir, en skýjað með köflum á Austurlandi og Austfjörðum. Hægari breytileg átt annað kvöld. Hiti verður líklega á bilinu sjö til 15 stig að deginum, hlýjast austanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að hiti breytist lítið og að það sé svipað útlit á morgun, miðvikudag. Í veðurspá veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að á fimmtudag eigi svo að snúast í norðaustlæga átt og kólna talsvert á norðanverðu landinu, en nýjustu spár benda til minni úrkomu en viðbúið er að úrkoma til fjalla falli sem slydda eða jafnvel snjókoma. Á sama tíma er spáð rigningu sunnantil og mun mildara veðri. Þeim sem eiga eitthvað undir veðri norðan heiða er því ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám. Vegaframkvæmdir víða Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að vinna við vegaframkvæmdir sé víða um land og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar á vinnusvæðum. Annars er nokkuð greiðfært. Þá er bent á það á vef þeirra að vegna viðhalds á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum verði tímabundnar lokanir á brúnni á virkum dögum milli 26. maí og 16. júní eða meðan á framkvæmdum stendur. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestan 5-13 og dálítil væta um vestanvert landið en skýjað með köflum á Austurlandi. Hiti 6 til 14 stig, svalast á Vestfjörðum. Á fimmtudag: Gengur í austan og norðaustan 8-15. Rigning og hiti 5 til 10 stig á sunnanverðu landinu. Rigning fyrir norðan, en slydda eða snjókoma til fjalla og kólnar. Hiti rétt yfir frostmarki síðdegis og um frostmark til fjalla. Á föstudag: Norðaustan 5-13. Sums staðar dálítil rigning sunnan- og austanlands en annars þurrt að kalla. Hiti 1 til 11 stig, kaldast norðaustanlands. Á laugardag: Austan 5-15 m/s, hvassast og rigning syðst, en víða þurrt annars staðar. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Austlæg átt og væta með köflum sunnan- og austantil, en þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 3 til 12 stig, hlýjast vestanlands. Á mánudag: Útlit fyrir norðan kalda og rigningu austast, en mun hægari og víða léttskýjað um landið vestanvert. Hiti að 14 stigum, hlýjast á Suðurlandi.
Veður Færð á vegum Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira