„Blint í stórhríð á Vestfjörðum“ Freyja Þórisdóttir skrifar 15. mars 2026 07:37 Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð hefur verið lokað en fleiri vegir eru ófærir. Vísir/Vilhelm Enn eru við gildi gular viðvaranir á Vestfjörðum en einnig óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi. Snjóflóðahætta verður á vegum á Vestfjörðum og hefur Vegagerðin lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti og verður vegunum þá lokað.
Þetta er meðal þess sem kemur fram á vef Veðurstofunnar en þar spáir slyddu eða snjókomu með köflum um mestallt land en styttir upp suðvestanlands eftir hádegi. Hiti um eða rétt yfir frostmarki. Austan 15-23 m/s og slydda eða snjókoma sunnantil og einnig norðvestanlands. Norðaustan 15-23 m/s í dag, en talsvert hægari á Norðaustur- og Austurlandi. Á að draga úr vindi í kvöld, sunnudaginn 15. mars. Gulu viðvaranirnar eru í gildi til klukkan tíu í kvöld vegna norðaustanhríðar og gilda sem fyrr segir á Vestfjörðum en einnig á Breiðafirði, Ströndum og Norðurlandi vestra. Varað er við truflunum á samgöngum á svæðinu og á vefnum spáir slæmu skyggni og versnandi færð. Á vef Vegagerðarinnar segir: „Erfið akstursskilyrði og blint í stórhríð á Vestfjörðum, þá sérstaklega á fjallvegum eins og t.d. Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi. Útlit fyrir áframhaldandi hríð á þeim slóðum á mánudag.“ Sömuleiðis segir í hugleiðingum veðurfræðings: „Gular viðvaranir eru í gildi og er fólk hvatt að fylgjast með fréttum af færð og veðri áður ef farið er milli landshluta, einkum þó norðvestantil á landinu.“ en hægt er að fylgjast með þróun færðar á vef Vegagerðarinnar. Í tilkynningu frá veðurfræðingi segir að erfið akstursskilyrði verði einnig að finna á Austfjörðum eftir hádegi, til að mynda á Fagradal og Fjarðarheiði. Þar segir einnig að búast megi við snörðum vindhviðum, um 35 m/s, í Öræfum í fyrstu, undir Hafnarfjalli og á Snæfellsnesi eftir hádegi og fram á kvöld, og aftur snarpar vindhviður í Öræfum í kvöld. Veðurstofan spáir slyddu eða snjókomu í dag um mestallt land.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag:Norðaustan 8-15 og él norðan- og austantil, annars þurrt að mestu. Hvessir við suðurströndina um kvöldið, hiti kringum frostmark.Á þriðjudag:Norðaustan 10-18, en talsvert hægari norðaustan- og austanlands. Snjókoma eða él á norðanverðu landinu, úrkomulítið suðaustantil en þurrt suðvestanlands. Hiti breytist lítið.Á miðvikudag:Vestlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en dálítil él norðaustanlands fram eftir degi. Heldur kólnandi.Á fimmtudag:Hlý sunnanátt og rigning eða súld, en úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Suðvestlægari og kólnar með éljum vestast seint um kvöldið.Á föstudag og laugardag:Suðvestanátt og él, en bjartviðri að mestu austanlands. Frost um mest allt land.
Veður Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira