Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. mars 2026 16:30 Quang Le gekkst einnig undir nafninu Davíð Viðarsson. Samsett Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Landsbankann af kæru Quang Le. Le, sem er meðal annars grunaður um mansal, var synjað um að stofna bankareikning og ákvað því að stefna Landsbankanum.
Quang Le,sem hét um tíma Davíð Viðarsson, stefndi Landsbankanum í september þar sem hann hafði ekki fengið að stofna til bankaviðskipta hjá þeim ári eftir að rannsókn á máli hans hófst. Hann er grunaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi. Lögregla hóf rannsókn sína fyrir um tveimur árum síðan og sætir Le, sem er frá Víetnam, farbanni. Þann 13. mars 2024 sendi Landsbankinn Le bréf og tilkynnti honum að bankaviðskiptum við hann yrði sagt upp. Ástæða uppsagnarinnar var að bankinn teldi viðskiptasamband Le ekki samrýmast áhættustefnu bankans og stefnu þeirra gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Uppsagnarfresturinn var tveir mánuðir. Le óskaði eftir því 3. febrúar 2025, tæpu ári síðar, að opna nýja bankareikning þar sem lögregluyfirvöld höfðu lokað öllum fyrirtækjum hans og persónulegum bankareikningi meðan hann hefði stöðu grunaðs manns. Hann vildi því fá nýjan bankareikning til að fá greidd laun og taldi sig eiga rétt á því að eiga bankareikning þar sem hann hafi verið búsettur á Íslandi í yfir átján ár, unnið, rekið fyrirtæki og greitt skatta. Landsbankinn synjaði Le og það gerðu sömuleiðis Arion banki 20. mars 2025, Indó sparisjóður 21. mars 2025 og Sparisjóður Strandmanna 15. apríl. Le taldi ákvörðun Landsbankans að loka fyrir inn- og útborganir af reikningum vera ástæðulausa og ólögmæta. Þá byggi orsakir uppsagnar bankans á kerfislægum kynþáttafordómum og brjóti lokunin gegn mannréttindum hans þar sem hann er útilokaður frá því að geta átt bankaviðskipti. Það væri skylda Landsbankans að veita honum umrædda þjónustu. Kvartaði ári of seint Landsbankinn sagði uppsögnina lögmæta auk þess sem það væri of seint fyrir Le að gera athugasemdir, átján mánuðum eftir að viðskiptasambandinu var sagt upp. Í svari þeirra við bréfi Le var vísað í viðskiptaskilmála bankans þar sem komi fram að bankanum sé heimilt, án rökstuðnings, að hafa stofnun viðskiptasambands. Dómurinn taldi að þar sem Le hefði ekki mótmælt uppsögninni og talið sig þurfa að óska sérstaklega eftir nýjum reikningi væri hægt að hafna málsástæðu Le um ástæðulausa og ólögmæta uppsögn. Þá hafi Landsbankinn vísað til áhættumats Le í svari sínu svo synjunin grundvallaðist ekki á kerfislægum kynþáttafordómum. Síðasta málsástæða Le var að bankanum beri skylda að veita honum umrædda þjónustu þar sem það sé óheimilt að útiloka hann frá því að eiga í bankaviðskiptum. Dómurinn mat það að lokum að fallast á málatilbúnað Landsbankans um að þeim hafi verið heimilt að synja Le með vísun í lög um peningaþvætti. Dómurinn sýknaði því Landsbankann af öllum kröfum Le.
Mál Quangs Le (Davíðs Viðarssonar) Dómsmál Landsbankinn Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira