Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Kristján Már Unnarsson skrifar 5. mars 2026 22:42 Air Atlanta hefur haft 99 Boeing 747-þotur á íslenskri skráningu frá árinu 1993. Luc Verkuringen/wikimedia Boeing 747-þotan er kölluð drottning himnanna enda var hún stærsta farþegaþota heims um áratugaskeið. Hin goðsagnakennda júmbóþota skipar einnig stærri sess í íslenskri flugsögu en flesta grunar.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá þegar fyrsta eintak júmbó-þotunnar kom út úr verksmiðju Boeing árið 1968. Heimurinn stóð á öndinni. Þetta var langstærsta flugvél sem mannkyn hafði séð og olli straumhvörfum í flugsamgöngum. Ef flugáhugamenn væru spurðir hver væri algengasta flugvélartegundin sem skráð hefur verið á Íslandi myndu eflaust margir svara að það væri Cessna Skyhawk. Nei, svarið er Boeing 747. Skráðar flugvélar hérlendis 1. Boeing 747 99 2. Cessna 172 69 3. Boeing 757 49 4. Cessna 150 49 Flugsögusérfræðingurinn Pétur P. Johnson tók tölurnar saman. Samkvæmt þeim hafa 99 eintök af Boeing 747, öllum útgáfum, borið íslensku einkennisstafina TF. Í öðru sæti er Cessna 172, eða Skyhawk, með 69 eintök. Í þriðja og fjórða sæti saman, með 49 eintök hvor, eru Boeing 757-þotan og Cessna 150/152, helsta kennsluvél íslensku flugskólanna í gegnum tíðina. Boeing 757-þotan með 49 eintök deilir þriðja sæti með Cessnu 150/152 yfir algengustu tegundir á Íslandi.Vilhelm Boeing 757-þotan var burðarás Icelandair í yfir þrjá áratugi og hefur engin tegund þjónað íslenskum flugfarþegum jafn lengi og þessi og er hún enn í notkun hjá félaginu. Cessna 172, sem er í öðru sæti, er vinsælasta einkaflugvél heims og sú flugvél sem framleidd hefur verið í flestum eintökum. Cessna 172 Skyhawk með 69 eintök er næstalgengasta flugvélartegundin sem skráð hefur verið á Íslandi. Hér er Ómar Ragnarsson í flugtaksbruni á TF-FRU á túni við Hvolsvöll árið 2010 á leið að mynda eldgosið í Eyjafjallajökli.Stöð 2/skjáskot Frægasta eintakið hérlendis er án efa TF-FRÚ, flugvél Ómars Ragnarssonar, sem um árabil færði íslenskum sjónvarpsáhorfendum flugmyndir heim í stofu úr öllum landshlutum. En það er Boeing 747-þotan sem trónir á toppnum með flest eintök allra flugvéla á íslenskri loftfaraskrá. Júmbó-þota birtist reyndar í litum Flugleiða árið 1982 þegar félagið leigði hana um skamma hríð í pílagrímaflug. Sú var á bandarískri skráningu og telst því ekki með. Þota Air Atlanta, TF-ABK, var fyrsta júmbó-þotan sem skráð var á Íslandi árið 1993. Hún hlut nafnið Agnar Kofoed Hansen. Fyrsta Boeing 747-þota Air Atlanta, TF-ABK, kom til Keflavíkur vorið 1993. Hún hlaut nafnið Agnar Kofoed Hansen.Stöð 2/Billi Saga júmbó-þotunnar í höndum Íslendinga er rakin í þættinum Flugþjóðin en það sem skýrir þennan mikla fjölda er umfangsmikill flugrekstur Air Atlanta. Forstjórinn játar að þar á bæ bera menn tilfinningar í garð hennar. „Ekki spurning. Fyrir mér er bara ein drottning himnanna. Það er 747-vélin. Það er ekkert flóknara heldur en það,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta, við Boeing 747-400 á Keflavíkurflugvelli.Egill Aðalsteinsson Þátturinn um júmbó-þotuna er sá sextándi í þáttaröðinni. Áskrifendur geta séð hann í heild sem og alla þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Fréttir af flugi Air Atlanta Boeing Icelandair Tengdar fréttir Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Ákvörðun Air Atlanta árið 1993 um að taka Boeing 747-þotur í rekstur þykir einhver sú djarfasta í sögu íslenskra flugmála. Júmbó-þoturnar voru á þeim tíma stærstu og dýrustu farþegaþotur heims. 1. mars 2026 07:47 Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni var í dag og flaug vélin sérstakan kveðjuhring yfir Reykjavíkursvæðinu. Forstjóri Atlanta segir þessa flugvélartegund hafa byggt upp félagið. 3. október 2024 21:31 Íslenskt flugfélag fjórði stærsti flugrekandi júmbó-þotunnar Framleiðslu júmbó-risaþotunnar hefur nú verið hætt og hefur síðasta Boeing 747-þotan verið afhent frá verksmiðjunum. Í upprifjun erlendra fjölmiðla á yfir hálfrar aldar sögu hennar hefur komið fram að íslenskt flugfélag er í fjórða sæti yfir stærstu flugrekendur þessarar einstöku flugvélar. 14. febrúar 2023 21:03 Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sjá meira
Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Ákvörðun Air Atlanta árið 1993 um að taka Boeing 747-þotur í rekstur þykir einhver sú djarfasta í sögu íslenskra flugmála. Júmbó-þoturnar voru á þeim tíma stærstu og dýrustu farþegaþotur heims. 1. mars 2026 07:47
Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni var í dag og flaug vélin sérstakan kveðjuhring yfir Reykjavíkursvæðinu. Forstjóri Atlanta segir þessa flugvélartegund hafa byggt upp félagið. 3. október 2024 21:31
Íslenskt flugfélag fjórði stærsti flugrekandi júmbó-þotunnar Framleiðslu júmbó-risaþotunnar hefur nú verið hætt og hefur síðasta Boeing 747-þotan verið afhent frá verksmiðjunum. Í upprifjun erlendra fjölmiðla á yfir hálfrar aldar sögu hennar hefur komið fram að íslenskt flugfélag er í fjórða sæti yfir stærstu flugrekendur þessarar einstöku flugvélar. 14. febrúar 2023 21:03