Hvít jörð á höfuðborgarsvæðinu og víðar Atli Ísleifsson skrifar 19. nóvember 2025 07:08 Gert ráð fyrir þriggja til tólf stiga frosti á landinu í dag. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Myndarlegur skýjabakki hefur í nótt færst yfir úr vestri og má búast við úrkomu á köflum úr þessum skýjabakka á vesturhelmingi landsins, yfirleitt snjókoma með frosti. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu vöknuðu þannig við hvíta jörð í morgun og má reikna með hálku eða hálkublettum á flestum leiðum.
Við vesturströndina mun hlýna upp fyrir frostmark og verður því rigning eða slydda um tíma þar. Á vef Veðurstofunnar segir að austantil á landinu verði þurrt veður og þokkalega bjart, en kuldinn muni bíta í kinnar, tveggja stafa frosttölur viðloðandi inn til landsins. Þannig er gert ráð fyrir þriggja til tólf stiga frosti á landinu í dag.„Á morgun skiptir veðrið um gír ef svo má segja og við fáum eina dæmigerða og síðbúna haustrigningu. Þá gengur í suðaustan strekking eða allhvassan vind með rigningu og súld og hlýnar í veðri, hiti á bilinu 5 til 9 stig þegar kemur fram á daginn. Á Norðaustur- og Austurlandi verður hægari vindur og þurrt.Veðrið virðist síðan ætla að róast fljótt aftur. Á föstudaginn og um helgina er útlit fyrir fremur hæga breytilega átt. Væntanlega verður vart við smávegis úrkomu í flestum landshlutum og það kólnar smám saman,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Gengur í suðaustan 10-18 m/s með rigningu eða slyddu, en hægari og þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Hlýnandi, hiti 3 til 9 stig seinnipartinn. Á föstudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 og skúrir eða slydduél. Rigning eða slydda á norðaustanverðu landinu fram á síðdegið. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag og sunnudag: Norðlæg átt og dálítil él, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Frost 0 til 5 stig. Á mánudag: Hæg breytileg átt og víða þurrt og bjart veður, en stöku él við norðurströndina. Frost 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins. Á þriðjudag: Suðlæg átt og líkur á éljum, en bjartviðri norðaustan- og austanlands.
Veður Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira