Lá við árekstri á meðan flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleikinn Árni Sæberg skrifar 31. janúar 2025 11:09 Flugumferðarstjórar eiga að hafa augun á vinnutölvunni, ekki enska boltanum. Þessi mynd tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm Alvarlegt flugatvik varð þann 25. febrúar árið 2024 þegar tvær litlar flugvélar rákust nánast saman í lofti yfir Skerjafirði. Á sama tíma voru flugumferðarstjórar að horfa á úrslitaleik enska deildabikarsins í knattspyrnu, þar sem Liverpool hafði betur gegn Chelsea.
Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa segir að flugvélarnar tvær hafi verið af gerðunum Cessna 172 og Diamond DA20. Þegar þeim var flogið yfir Skerjafjörð hafi þær verið ískyggilega nálægt hvor annarri. Minnsti hæðaraðskilnaður hafi verið aðeins 7,6 metrar og minnsti lengdaraðskilnaður aðeins 23 metrar. „Því voru minnst 75 fet, eða um 23 metrar, á milli flugvélanna þar sem árekstrarhættan varð.“ Mikil umferð um völlinn Í greiningu nefndarinnar segir að þrír flugumferðarstjórar hafi verið í vinnurými flugturnsins á Reykjavíkurflugvelli. Einn hafi séð um turnstöð, annar um grundstöð og sá þriðji hafi verið í hvíld, en þó staðsettur í vinnurýminu. Hvíldarrými flugumferðarstjóra sé að finna á hæðinni fyrir neðan í flugturninum. Talsverð flugumferð hafi verið við Reykjavíkurflugvöll um það leyti sem atvikið átti sér stað. Mikið fjarskiptatíðniálag hafi verið á turnbylgjunni (118,0 MHz), en það hafi mælst um 70 prósent á tímabilinu 15:17 til 15:27, en talað sé um að ef að fjarskiptaálag sé yfir 50 prósent þá sé mikið að gera á bylgjunni hjá flugumferðarstjórum. „Sjónvarp var í gangi í vinnurými flugturnsins og verið var að sýna úrslitaleik í fótbolta á Englandi.“ Mikið skvaldur um leikinn Við uppspilun á umhverfisupptöku í flugturninum hafi komið í ljós að talsvert mikið hafi verið um skvaldur í vinnurými flugturnsins, sem ekki tengdist flugumferðarstjórn. Talið sé að þetta skvaldur hafi haft áhrif í aðdraganda atviksins. Misjafnt hafi verið hvort kveikt var á sjónvarpinu á daginn en það hafi þó komið fyrir. Tilgangurinn með sjónvarpinu muni hafa verið afþreying þegar lítið eða ekkert var að gera í flugturninum, til dæmis seint á kvöldin, eða þegar ekki var flogið vegna veðurs. Engar skriflegar reglur hafi verið til varðandi notkun á sjónvarpinu í flugturninum þegar atvikið varð. „Út frá upptökum í flugturninum, þá telur RNSA að allir flugumferðarstjórarnir hafi haft athygli á fótboltaleiknum skömmu fyrir og þegar atvikið átti sér stað. Engar flugumferðarupplýsingar voru gefnar flugmönnum flugvélanna af flugumferðarstjóra í turnstöðu.“ Flugumferðarstjórinn kom af fjöllum Klukkan 15:26:18, þegar Cessnan var á krossvind og Diamond var að koma undan vindi, hafi orðið árekstrarhætta á milli flugvélanna, rétt vestan við Kársnes í um 900 feta hæð. Að sögn flugmanna beggja flugvéla, þá hafi Diamond flogið rétt undir Cessnuna. Alls reyndust hafi reynst 75 fet, eða um 23 metrar, á milli flugvélanna þar sem að árekstrarhættan varð. Flugumferðarstjóra í turnstöðu hafi verið ókunnugt um að flugferlar flugvélanna hefðu skorist þegar flugmaður Cessnunnar lét hann vita af því, 32 sekúndum eftir atvikið. „Samkvæmt umhverfisupptökunum, þá gerði enginn athugasemd við að fótboltaleikur væri í sýningu í sjónvarpi í vinnurými flugturnsins.“ Leiknum og spjalli um hann að kenna „Það er niðurstaða RNSA að fótboltaleikurinn í sjónvarpinu, umræðurnar og skvaldrið í vinnurými flugturnsins hafi haft áhrif á aðdraganda þessa alvarlega flugumferðaratviks,“ segir í skýrslunni. Þá segir að nefndin telji einnig að óhapp, þegar svokallaður ræmustokkur féll í gólfið í flugturninum, hafi haft áhrif í aðdraganda atviksins, með því að enn frekar draga athygli allra í flugturninum frá flugumferðinni. Sjónvarpið tekið úr sambandi Í skýrslunni segir að í kjölfar þessa alvarlega flugumferðaratviks hafi sjónvarpið verið aftengt, þann 26. febrúar 2024. Þann 27. febrúar hafi verið haldinn fjarfundur með flugumferðarstjórn á Reykjavíkurflugvelli (BIRK) og Akureyraflugvelli (BIAR) þar sem að þeir voru upplýstir um atvikið. Farið hafi verið yfir mikilvægi agaðra vinnubragða, notkun miðla í vinnurýmum og neikvæð og truflandi áhrif afþreyingar starfsmanna á aðra starfsmenn sem sinna vinnustöð. „Sett var í vinnslu að búa til verklagsreglur um notkun miðla í vinnurýmum flugleiðsögu. Reglurnar munu ná til notkunar á sjónvarpi, útvarpi, netmiðlum, leikjum, símum og tölvum svo eitthvað sé nefnt.“
Fótbolti Fréttir af flugi Reykjavíkurflugvöllur Samgönguslys Reykjavík Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira