Milljarðar til SOS Barnaþorpa sem beina sjónum sínum að Ásbrú Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. júlí 2021 10:43 Vinstra megin frá Heimstaden á Íslandi; Gauti Reynisson, framkvæmdastjóri, Margrét Guðjónsdóttir, forstöðumaður fjármála og mannauðsstjóri og Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri. Hægra megin frá SOS á Íslandi, f.v. Rakel Lind Hauksdóttir, fjármála- og fjáröflunarstjóri, Hans Steinar Bjarnason, upplýsingafulltrúi og Ragnar Schram, framkvæmdastjóri. Í dag hefst formlega samstarf SOS Barnaþorpanna og evrópska íbúðaleigufyrirtækisins Heimstaden sem ætlað er að tryggja örugg heimili og traustan grunn fyrir barnafjölskyldur um allan heim. Samstarfið gerir SOS meðal annars kleift að styrkja verkefni í þágu barna á Íslandi í fyrsta sinn. Ærslabelgur er á leið á Ásbrú í Reykjanesbæ auk þess sem stutt verður við sérkennslu á leikskóla á svæðinu.
Í tilkynningu frá SOS Barnaþorpum kemur fram að samstarfið, sem gengur undir nafninu „A Home for a Home“, mun á fyrsta ári þess styrkja yfir 30 verkefni SOS Barnaþorpanna í 19 löndum, þar á meðal fjölskyldueflingu, umönnun barna og atvinnustuðning við ungmenni. Fyrir hvert heimili í íbúð Heimstaden, gefur fyrirtækið 100 evrur til SOS Barnaþorpanna árlega. Í dag á Heimstaden yfir 110.000 íbúðir víðsvegar um Evrópu, og eftir því sem fyrirtækið vex mun framlagið hækka. Heimstaden styrkir SOS Barnaþorpin á heimsvísu þannig um rúmlega 1,6 milljarða króna á fyrsta samstarfsárinu. Fyrir íslenska eignasafnið nemur styrkurinn 24 milljónum króna á ársgrundvelli. „Ekkert er mikilvægara en að geta veitt börnum örugga og hamingjusama æsku. Við höfum yfir 70 ára farsæla reynslu af því að efla fjölskyldur og vera til staðar fyrir börn sem hafa misst foreldraumsjón. Þetta samstarf með Heimstaden mun hafa veruleg áhrif á líf fjölmargra og jákvæð keðjuverkandi áhrif á komandi kynslóðir,“ segir Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Miklu meira en fjárframlag Markmið SOS Barnaþorpanna og Heimstaden er að setja ný viðmið fyrir samstarf fyrirtækja og góðgerðafélaga og að finna nýjar samstarfsleiðir. Þessu tengt má nefna verkefni í Gíneu-Bissá þar sem SOS Barnaþorpin eru að þróa næstu kynslóð barnaþorpa. „Með því að nýta sérþekkingu Heimstaden á fasteignaumsjón og sjálfbærni, stendur til að nýja barnaþorpið verði sjálfbær miðstöð og veiti hreina orku og stafrænt aðgengi, starfsþjálfun og neyðarhúsnæði fyrir börn og ungmenni í samfélaginu,“ segir í tilkynningunni. Patrik Hall. „Þetta samstarf er svo miklu meira en fjárframlag. Með „A Home for a Home“ tökum við samfélagsstefnu okkar upp á næsta stig og teygjum stefnu okkar um að skapa vinaleg heimili, til barna og fjölskyldna um allan heim. Við sjáum stórkostleg tækifæri í því að nýta sérþekkingu okkar og virkja starfsfólk okkar, samstarfsaðila og jafnvel íbúa í þessari spennandi vegferð,“ segir Patrick Hall, forstjóri Heimstaden. Áhrif heimsfaraldursins Í tilkynningu SOS segir að yfir 200 milljónir barna búi í dag við óstöðugar aðstæður og eru í hættu á að missa foreldraumsjón. Heimsfaraldurinn hafi komið niður á baráttunni gegn fátækt og hungri og m.a. leitt af sér fjölgun á þungunum meðal unglingsstúlkna, barnahjónaböndum og geðrænum vandamálum í mörgum heimshlutum. „Vegna Covid-19 faraldursins þurfa fleiri börn en nokkru sinni aðstoð. Verkefnið „A Home for a Home" hjálpar okkur að mæta brýnni þörf, stækka verkefnin okkar og að hefja ný,” bætir Ragnar við. Fyrsta íslenska verkefni SOS Barnaþorpanna Auk þess að styrkja fjölda alþjóðaverkefna, styrkir „A Home for a Home“ einnig verkefni í nærumhverfinu. Í nánu samstarfi við SOS Barnaþorpin í starfslöndum Heimstaden hafa verkefnahópar sett af stað verkefni til að styðja við börn og fjölskyldur á staðnum. „Ísland er eitt af nokkrum aðildarlöndum SOS Barnaþorpanna sem sinna eingöngu fjáröflun og þjónustu við styrktaraðila en hafa ekki starfrækt innanlandsverkefni. Þetta er því í fyrsta sinn sem SOS á Íslandi getur tekið þátt í verkefni sem varðar velferð barna hér á landi. Það þykir okkur afar ánægjulegt,“ segir Rakel Lind Hauksdóttir, fjármála- og fjáröflunarstjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi. Stuðningur við börn á Ásbrúarsvæðinu Í fyrstu verkefnum a Home for a Home hér á Íslandi er athyglinni beint að Ásbrúarsvæðinu á Reykjanesi, sem hefur fundið sterkt fyrir áhrifum heimsfaraldursins. Þar eru tvö verkefni sem hljóta forgang. Á Ásbrú er þörf fyrir fjölbreyttari afþreyingu fyrir börn og ungmenni í nærumhverfi sínu. „A Home for a Home“ verkefnið mun afhenda Reykjanesbæ ærslabelg að gjöf, sem er fyrsta skref í byggingu nýs leikvallar, miðsvæðis í hverfinu. „Markmiðið er að skapa vettvang sem styrkir félagslegt net barna og ungmenna og stuðlar að þroska og heilbrigði. Það hefur sterkt fyrirbyggjandi gildi að börn hafi afþreyingu í nærumhverfi sínu og vettvang til útivistar og að rækta vináttu,” segir Gauti Reynisson framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi. Ragnar Schram og Gauti Reynisson. Að auki snýr annað verkefni að stuðningi við sérkennslu í leikskólanum Skógarási á Ásbrú. Verkefnið mun styrkja leikskólann um tækjabúnað til sérkennslunota og þannig efla úrræðin sem í boði eru. Snemmtæk íhlutun er gríðarlega mikilvæg til að efla færni barna með sérþarfir og með þessu fá kennarar búnað sem styður verulega við starf þeirra og getur haft jákvæð áhrif á þroska barnanna. „Við hlökkum til að halda áfram að vinna að verkefnum tengdum „A Home for a Home“ Þetta er aðeins byrjunin og við hlökkum til að sjá samstarfið vaxa eftir því sem eignasafn okkar stækkar,“ segir Gauti að lokum.
Hjálparstarf Reykjanesbær Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira