Fréttir í tímaröð




Fréttamynd

„Það sem svíður mest“

„Akkúrat núna er ég svekktur. Við eigum að gera betur. Við erum betra lið en við sýndum í dag. Við þurufm að horfa á þetta aftur og gera betur. Þetta er ekki nóg,“ segir landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson eftir markalaust jafntefli Íslands við Eistland ytra í Þjóðadeildinni í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

„Náðum ekki að klukka þá framan af“

Aron Pálmarsson, þjálfari FH, segir að leikmenn sínir hafi fengið dýrmæta lexíu þegar franska liðið Limoges tók þá í kennslustund í fyrri hálfleik í leik liðanna í Evrópudeild EHF í handbolta karla í Kaplakrika í kvöld. 

Handbolti
Fréttamynd

Náðu að vinna sterkt spænskt lið

Íslendingaliðið Gummersbach náði að vinna nauman sigur á CB Ciudad í Evrópudeild karla í handbolta. Leikurinn var mjög jafn en á lokasprettinum náði Gummersbach að sækja sigurinn og endaði leikurinn 34-30.

Handbolti
Fréttamynd

Unnu stór­sigur og komu Ís­landi í umspil

U21 landslið Frakklands vann stórsigur á U21 landsliði Sviss í leik sem endaði 7-1. Með sigri Frakklands tryggir íslenska liðið sér í umspil til þess að komast á EM og endar liðið í öðru sæti riðilsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Slakur fyrri hálf­leikur varð Val að falli

Valur tapaði gegn RD LL Grosist Slovan í Evrópudeildinni í handbolta í dag. Slóvenska liðið reyndist of þungur biti fyrir Val og náði heimaliðið að byggja stórt forskot sem Valur náði ekki að minnka og endaði leikurinn með 34-29 tapi Vals.

Handbolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: Fær­eyjar - Ís­land 0 - 2 | Umspilssæti Ís­lendinga stað­reynd

Íslenska U21 árs landslið karla tryggði sér sæti í umspili um sæti á Evrópumótinu eftir sannfærandi 0-2 sigur á Færeyjum ytra í lokaumferð undankeppninnar í kvöld. Íslenska liðið þurfti nauðsynlega á sigri að halda og treysta um leið á að Sviss myndi ekki vinna Frakkland. Strákarnir kláruðu sitt verkefni af miklu öryggi og Frakkar réttu risastóra hjálparhönd þegar þeir völtuðu yfir Svisslendinga. Umspilssæti Íslendinga er því staðreynd.

Fótbolti