Innlent
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 334 ›
Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Bókun 35 verður lögð fyrir Alþingi í vikunni í kjölfar þess að máli íslenska ríkisins var vísað til EFTA-dómstólsins. Þingmenn Viðreisnar og Miðflokksins tókust á um málið í Sprengisandi. Innlent 4.10.2026 17:02
„Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Forstjóri stærstu bílaleigu landsins segist ekki vita hvort hann eigi að hlæja eða gráta yfir hugmyndum innviðaráðherra um breytingar á innheimtu hraðasekta. Starfsmenn bílaleiga geri vart annað en að sinna innheimtu fyrir ríkið þessa dagana. Innlent 4.10.2026 16:30
Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Hið árlega pestatímabil hefur leikið fjölda landsmanna grátt en Læknavaktin tekur á móti hundruðum skjólstæðinga á hverjum degi þessa stundina. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir mikilvægt að fólk láti reyna á öll húsráð, slökun og annað sem því býðst heima fyrir áður en það geri sér ferð á heilsugæslur eða Læknavaktina. Það séu bæði kvef- og magapestir að ganga fólks á milli. Innlent 4.10.2026 15:41
Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Lagt er til að flytja starfsemi ráðhúss Húnaþings vestra tímabundið úr ráðhúsinu og yfir í Félagsheimili Hvammstanga. Ný skýrsla sýnir fram á alvarlegt ástand loftgæða í húsinu. Innlent 4.10.2026 15:41
Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Skjálfti sem lét finna fyrir sér á höfuðborgarsvæðinu í nótt átti upptök sín í Brennisteinsfjöllum en náttúruvársérfræðingur segir sprungur á svæðinu hrökkva reglulega. Verið sé að bíða eftir stórum skjálfta á svæðinu en enginn gosórói hafi mælst og því ekki endilega útlit fyrir eldgos í náinni framtíð. Innlent 4.10.2026 14:52
Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Fjármálaráðherra segir það valda áhyggjum hvað virðing og traust til Alþingis Íslendinga sé lítið. Gera þurfi breytingar á þingsköpum en passa upp á minnihlutaverndina. Innlent 4.10.2026 14:49
Arnarnesvegur opnar loks á morgun Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. Innlent 4.10.2026 13:37
„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Kona sem fæddist í Oleshky í Úkraínu en hefur búið á Íslandi í tuttugu ár segir fjölskyldu sína borða gras og snigla úr garðinum til þess að lifa af. Veturinn framundan muni vera hörmulegur fyrir íbúa Oleshky sem er undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu. Íbúar hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði og skortir mat og aðrar nauðsynjar. Innlent 4.10.2026 13:03
Skjálfti upp á 3,4 Jarðskjálfti upp á 3,4 reið yfir rétt austan við Hamarinn á Vatnajökli nú í hádeginu. Innlent 4.10.2026 13:03
„Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á Jökuldalsheiði í gær þegar fjögurra bíla árekstur varð við Háreksstaðakvísl. Það voru meðal annars aðilar frá björgunarsveitunum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni, Rauða krossinum og slökkviliðinu sem sinntu viðbragðinu. Tveir létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir. Innlent 4.10.2026 11:56
Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Í hádegisfréttum Bylgjunnar er rætt við yfirlögregluþjón á Austurlandi um banaslysið sem varð þar í gær. Innlent 4.10.2026 11:39
Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Enginn var handtekinn í gærkvöldi þegar lögreglan fylgdist með samkomu Vítisengla við Auðbrekku í Kópavogi í gærkvöldi. Lögreglan hefur ítrekað fylgst með slíkum sakomum. Innlent 4.10.2026 10:30
Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Páll Magnússon þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Innlent 4.10.2026 09:49
Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Tveir létust í fjögurra bíla árekstri sem varð rétt fyrir hádegi í gær á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum. Þeir látnu voru erlendir ferðamenn á sjötugsaldri. Innlent 4.10.2026 09:38
Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörgu að snúast í gærkvöldi og í nótt en á varðsvæði stöðvar tvö, sem nær yfir Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, barst lögreglunni tilkynning um hugsanlegan ölvunarakstur. Ökumaðurinn hafði ekið bifreið sinni yfir kant og upp á gras. Þegar laganna verði bar að garði hafði bifreiðinni svo verið ekið á ljósastaur en ökumaðurinn var handtekinn grunaður um að aka undir áhrifum áfengis sem og ávana- og fíkniefna. Innlent 4.10.2026 07:35
Höfuðborgarsvæðið skalf Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og á Álftanesi svo dæmi séu tekin. Innlent 4.10.2026 00:42
Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Lögreglan hefur verið með mikinn viðbúnað í Auðbrekku í Kópavogi í kvöld. Í götunni stendur yfir veisla á vegum mótorhjólaklúbbanna Vítisengla og Red Devils. Innlent 3.10.2026 22:27
Katla skelfur Nokkrir skjálftar hafa mælst í Mýrdalsjökli í kvöld, þá aðallega í Kötluöskju. Innlent 3.10.2026 21:45
Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Salma Björk Önnudóttir var í dag kjörin nýr formaður ungliðahreyfingar Miðflokksins á aukaaðalfundi sem hreyfingin hélt í Hamraborg. Jafnframt samþykkti hreyfingin ályktun sem fjallar meðal annars um skólamál, hinsegin mál, útlendingamál og íslenska tungu. Innlent 3.10.2026 20:44
„Okkur finnst við vera undanskilin“ Sú staðreynd að Austurland leggi meira til ríkissjóðs en það fær til baka sýnir með skýrum hætti hversu mikilvægt atvinnulíf og verðmætasköpun á svæðinu er. Því þurfi ríkið að fjárfesta í þeim innviðum sem gera fólki og fyrirtækjum kleift að búa og starfa á svæðinu. Þetta segir formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Innlent 3.10.2026 15:55
Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna að íslenskir karlmenn hafi íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum er viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag að mati doktorsnema sem kallar eftir viðbrögðum. Innlent 3.10.2026 14:17
Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Lögreglan hefur áhyggjur af nýrri tískubylgju meðal hóps ungra ökumanna sem virðist vera að ryðja sér til rúms á samfélagsmiðlum. Athæfið birtist þannig að ökumenn taka sig upp á ógnarhraða og smella af sér bílbeltinu. Innlent 3.10.2026 12:46
Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. Innlent 3.10.2026 12:00
Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Í hádegisfréttum Bylgjunnar er rætt við samfélagslögreglu sem hefur áhyggjur af nýju æði sem hefur gripið um sig meðal ungmenna. Þar keyra þau á allt að 160 kílómetra hraða og taka sig upp á meðan þau smella af sér bílbeltinu. Innlent 3.10.2026 11:43
Gul viðvörun eftir stóra skriðu Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum en skriður og grjóthrun hafa fallið á svæðinu síðustu daga. Mjög úrkomusamt hefur verið víða um land og er gert ráð fyrir áframhaldandi úrkomu fram yfir helgi. Stór skriða féll á Hnífsdalsveg á norðanverðum Vestfjörðum í gær. Innlent 3.10.2026 11:10
Illa brugðið en heill á húfi Flugvél af gerðinni Skyhawk 172 fór út af flugbrautinni á Hólmsheiði við lendingu í gær. Skemmdir urðu á vélinni en engan sakaði í slysinu. Málið er á borði Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Innlent 3.10.2026 10:38
Handtekinn grunaður um að beita piparúða Óskað var eftir aðstoð lögreglu vegna slagsmála og einn handtekinn, meðal annars grunaður um að beita piparúða. Sá var vistaður í fangageymslu á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Innlent 3.10.2026 08:05
Lýsa eftir Halldóri Inga Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af Halldóri Inga Emilssyni, 43 ára, en ekkert hefur spurst til hans í nokkurn tíma. Innlent 2.10.2026 21:47
„Of margar sögur af vondri meðferð“ Dómsmálaráðherra segir að verkalýðshreyfingin hafi kallað eftir því að lokað yrði á dvalarleyfi fyrir svokallaðar au pair frá löndum utan evrópska efnahagssvæðisins. „Það eru of margar sögur af vondri meðferð þannig að ég er að stíga þetta skref,“ segir hann meðal annars. Innlent 2.10.2026 21:02
Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Hafnarfjarðarbær hyggst ekki hækka almennar gjaldskrár umfram 2,5 prósent á árinu 2027. Þá hyggst bærinn hverfa frá lækkun á systkinaafsláttarkerfi fyrir leikskóla á þeim grundvelli að sú breyting hefði getað haft í för með sér hækkun umfram 2,5 prósent fyrir tiltekna hópa. Innlent 2.10.2026 20:21