Efnahagsmál
1 2 3 4 5 6 … 91 ›
Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Formaður VR segir stöðuna í viðræðum félagsins við Samtök atvinnulífsins grafalvarlega og útlit sé fyrir að þær séu leið inn í blindgötu. Framkvæmdastjóri SA segir stál í stál eins og sakir standa. Innlent 7.10.2026 14:20
Uggandi yfir afstöðu VR Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni. Viðskipti innlent 7.10.2026 09:41
Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, munu gera grein fyrir ákvörðun sinni um að halda stýrivöxtum óbreyttum á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Viðskipti innlent 7.10.2026 09:03
Stýrivextir áfram átta prósent Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mældist 5,9 prósent í september. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun. Viðskipti innlent 7.10.2026 08:30
Sveitarfélögin geta skipulagt lækkun verðbólgu Auka þarf sveigjanleika vaxtarmarkanna svo sveitarfélögin geti brugðist tímanlega við íbúðaþörf og lýðþróun og nýtt raunhæfa uppbyggingarkosti innan eigin marka. Heimila þarf breytingar á mörkunum vegna einstakra verkefna þegar þörf og forsendur uppbyggingar liggja fyrir. Að halda mörkunum óbreyttum þrátt fyrir breyttar þarfir er ekki hlutlaus ákvörðun heldur ákvörðun um að viðhalda vandanum. Umræðan 5.10.2026 10:32
Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA. Viðskipti innlent 5.10.2026 10:26
Vaxandi verðbólguáhyggjur en vaxtahækkun kæmi „nokkuð á óvart“ Þótt verðbólga og verðbólguvæntingar hafi hækkað frá síðustu vaxtaákvörðun og rök séu fyrir því að Seðlabankinn herði taumhaldið enn frekar telja greinendur IFS líklegast að peningastefnunefnd haldi stýrivöxtum óbreytum í næstu viku. Hagkerfið er í hægagangi, raunvextir áfram háir og óvissa á vinnumarkaði mikil, en ekki er útilokað að gripið verði til einnar vaxtahækkunar til viðbótar síðar á árinu. Innherji 3.10.2026 13:31
Óttast „harða lendingu“ með efnahagssamdrætti og verulegu atvinnuleysi Skýr merki eru komin fram um að hagkerfið sé að kólna mun hraðar en flestar hagspár hafa gert ráð fyrir og hætta er á að áfram dragi úr hagvexti á næsta ári samhliða verulega auknu atvinnuleysi, að mati greinenda Acro. Þeir óttast að þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar komi í veg fyrir að Seðlabankinn geti brugðist við versnandi efnahagsástandi með vaxtalækkunum og að niðurstaðan verði „hörð lending“. Innherji 1.10.2026 10:53
Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í viðtali sem birt var fyrr í dag, miðvikudaginn 30. september, á Vísi. Þau segja málflutning ráðherrans ríma illa við þá stöðu sem blasi við launafólki og að hann vinni gegn því. Innlent 30.9.2026 15:36
Spá óbreyttum vöxtum Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda vöxtum óbreyttum í næstu viku. Verðbólga hefur ekki mælst meiri í tvö ár. Viðskipti innlent 30.9.2026 14:56
„Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Formaður Starfsgreinasambandsins furðar sig á þeim orðum fjármálaráðherra að launafólk hafi það ekki verra nú en áður og að heimilin standi vel. Einn aðili hafi skilað auðu í því verkefni að láta kjarasamninga halda og það sé ríkið. Innlent 30.9.2026 13:02
„Ég er ógeðslega reiður“ Formaður stéttarfélagsins Framsýnar segist „ógeðslega reiður“ og fúll vegna ummæla fjármálaráðherra. Reynslu- og sambandsleysi einkenni ríkisstjórnina og ljóst að lægst launaða fólkið í landinu þoli ekki efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar. Innlent 30.9.2026 08:59
Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu sjónvarpsviðtali við fréttastofu. Innlent 30.9.2026 06:46
Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Stýrivextir munu standa í stað næstu mánuði og verða sex prósent undir lok 2028 samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka. Gert er ráð fyrir að kjarasamningar muni halda þrátt fyrir virkt forsenduákvæði. Viðskipti innlent 29.9.2026 14:17
Að vaxa út úr vandanum Margt bendir til þess að við séum á leið í kreppu undir oki verðbólgu og hárra vaxta. Stýrivextir eru komnir í 8%, verðbólgan hefur verið yfir 5% átta mánuði í röð og hagkerfið er farið að dragast saman. Atvinnuleysi eykst og raunverð húsnæðis hefur lækkað mánuðum saman. Seðlabankinn og ríkisstjórnin virðast með stefnu sinni vera að þvinga hagkerfið í samdrátt. Það mun koma samfélagi sem byggir á hagvexti í óefni. Skoðun 24.9.2026 15:46
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna og gera grein fyrir yfirlýsingu sinni á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Yfirlýsingin var birt í morgun en hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Viðskipti innlent 23.9.2026 09:00
Kólnandi hagkerfi og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins Óróleiki í alþjóðlegu efnahagslífi og hátt vaxtastig hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum gæti „reynt á viðnámsþrótt“ fjármálakerfisins, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún beinir sem fyrr einnig sjónum sínum að stöðunni á húsnæðismarkaði, sem einkennist af raunverðslækkunum og lengri sölutíma eigna, og segir þá þróun geta reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil. Innherji 23.9.2026 08:57
Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Skýr merki eru um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif samhliða háum vöxtum, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Alþjóðlegur óróleiki, viðvarandi verðbólga og háir vextir hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum segir hún geta reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins. Viðskipti innlent 23.9.2026 08:34
Horfur á húsnæðismarkaði versna Íbúðum í byggingu hefur fækkað á sama tíma og nýjum óseldum íbúðum hefur fjölgað. Nýjar framkvæmdir á milli íbúðatalninga HMS hafa aldrei verið færri og ekki hafa færri íbúðir verið á fyrri framvindustigum. Horfur um íbúðauppbyggingu árin 2027 og 2028 hafa versnað frá því í mars. Viðskipti innlent 22.9.2026 12:08
Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Umræðan um verðbólgu og hátt vaxtastig hefur ekki farið framhjá neinum undanfarnar vikur og mánuði. Þetta er í raun óboðleg staða fyrir bæði fólk og fyrirtæki og við viljum öll sjá trúverðugar aðgerðir stjórnvalda til að vinda ofan af ástandinu og vinna að raunverulegum árangri. Skoðun 20.9.2026 17:03
Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar markar þáttaskil í umræðunni um framtíð íslensks peningakerfis. Meirihluti kjósenda hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju og upptaka evru er því ekki raunhæfur kostur í fyrirsjáanlegri framtíð. Skoðun 20.9.2026 10:32
Seðlabankar styðjast við fleiri mælikvarða en skilaboðin verða óskýrari Seðlabankar víða um heim hafa í auknum mæli horfið frá því að horfa til eins tiltekins mælikvarða á undirliggjandi verðbólgu og styðjast þess í stað við safn ólíkra mælikvarða. Þótt það kunni að gefa betri mynd af verðbólguþrýstingi í hagkerfinu er hætta á því, samkvæmt nýrri greiningu, að skilaboðin verði óskýr og almenningur eigi erfiðara með að átta sig á hvaða mælikvarðar ráða mestu við vaxtaákvarðanir. Innherji 18.9.2026 11:42
Heimilin halda að sér höndum og kortaveltan skreppur saman milli ára Heimilin virðist vera farin að halda að sér höndum í neyslu en kortavelta Íslendinga, miðað við fast gengi og verðlag, dróst talsvert saman í liðnum mánuði. Verðbóguvæntingar á skuldabréfamarkaði lækkuðu eilítið í fyrstu viðskiptum í morgun. Innherjamolar 17.9.2026 10:45
Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23 prósent í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6 prósentum í 5,8 prósent. Viðskipti innlent 17.9.2026 10:24
Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Stærsta launahækkunin skilar ekki endilega bestu kjarabótunum. Danski hagfræðingurinn Lars Christensen vill að Íslendingar læri af Dönum og taki sameiginlega ábyrgð á því að launahækkanir endi ekki að stórum hluta í verðbólgu og hærri vöxtum. Viðskipti innlent 16.9.2026 08:46
Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, hafi verið neikvæð um 48,3 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2026 eða sem nemur 3,8 prósentum af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Til samanburðar nam hallinn á öðrum ársfjórðungi 2025 3,0 prósentum af vergri landsframleiðslu þess ársfjórðungs. Viðskipti innlent 15.9.2026 10:09
Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna. Viðskipti innlent 15.9.2026 08:09
Telja að hallinn geti orðið yfir fjörutíu milljarðar þrátt fyrir fyrirheit um afgang Útlit er fyrir að afkoma ríkissjóðs á árinu 2027 verði umtalsvert lakari en lagt er upp með í nýju fjárlagafrumvarpi, að mati greinenda Acro, sem telja líklegustu sviðsmyndina vera halli upp á 43 milljarða. Forsendur frumvarpsins eru sagðar of bjartsýnar, „svo ekki sé fastar að orði kveðið“, miðað við hægari efnahagsumsvif og án frekari aðgerða sé erfitt að sjá hvernig markmið um fimm milljarða afgang geti gengið eftir. Innherji 14.9.2026 16:38
Sendir röng skilaboð og hreyfir við verðbólguvæntingum á brothættum stað Afleiðingarnar af því að boða hækkun á gjöldum ríkisins í samræmi við verðbólgu, sem hefur verið gert í síðustu tveimur fjárlagafrumvörpum, verða til þess að hreyfa við verðbólguvæntingum sem eru fyrir á „brothættum stað“, að sögn varaseðlabankastjóra, og að Seðlabankinn myndi gjarnan vilja sjá þetta endurhugsað. Hann segir jákvætt að aðhaldsstigið í ríkisfjármálum eigi að aukast á milli ára og varar við því að fara í meiri launahækkanir á vinnumarkaði, einkum núna þegar það er að myndast „mikill slaki í þjóðarbúinu.“ Innherji 14.9.2026 14:44
Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Fjármála- og efnahagsráðherra var ómyrkur í máli þegar fjárlagafrumvarp hans var rætt á fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í morgun. Hann sakaði fyrri ríkisstjórnir um að hafa eytt um efni fram allt frá árinu 2019 og komið ríkissjóði í 800 milljarða króna mínus. „Hvað er að þessu liði?“ spurði hann meðal annars. Viðskipti innlent 14.9.2026 13:47