Horfur á húsnæðismarkaði versna Árni Sæberg skrifar 22. september 2026 12:08 Íbúðum í byggingu fækkar. Vísir/Anton Brink Íbúðum í byggingu hefur fækkað á sama tíma og nýjum óseldum íbúðum hefur fjölgað. Nýjar framkvæmdir á milli íbúðatalninga HMS hafa aldrei verið færri og ekki hafa færri íbúðir verið á fyrri framvindustigum. Horfur um íbúðauppbyggingu árin 2027 og 2028 hafa versnað frá því í mars.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum septembertalningar HMS á íbúðum í byggingu. Í tilkynningu á vef stofnunarinnar segir að alls hafi 6.216 íbúðir verið í byggingu á landinu öllu og þeim hafi fækkað um 11 prósent á síðustu sex mánuðum. Á sama tíma hafi nýjum óseldum íbúðum haldið áfram að fjölga hratt og þær séu nú um 85 prósent fleiri en fyrir ári síðan. Hægir á framvindu þeirra íbúða sem þó eru í byggingu Alls hafi 2.374 íbúðir á framvindustigum 1 til 6 verið á sama framvindustigi í septembertalningu og þær voru í marstalningu. Íbúðum með óbreytta framvindu hafi því fjölgað um 65 prósent á síðustu sex mánuðum og rúmlega þrefaldast á síðastliðnu ári. Tæplega þrjár af hverjum fjórum íbúðum með óbreytta framvindu séu á framvindustigum 3 og 4. „Óbreytt framvinda á milli talninga þarf ekki að þýða að framkvæmdir hafi legið niðri á tímabilinu. Mikil fjölgun íbúða með óbreytta framvindu er þó vísbending um að hægt hafi á framgangi hluta þeirra verkefna sem þegar eru í byggingu.“ Nýjar framkvæmdir aldrei færri Þá segir að frá marstalningu 2026 hafi framkvæmdir hafist við byggingu 772 íbúða á landinu öllu og þær hafi aldrei verið færri frá upphafi íbúðatalninga HMS. Nýjum framkvæmdum hafi fækkað um 56 prósent á milli talninga og um 48 prósent frá septembertalningu 2025. Þegar horft er til lengra tímabils sé samdrátturinn þó ekki jafnmikill og síðasta talning ein og sér gefur til kynna. Á síðustu tólf mánuðum hafi framkvæmdir hafist við 2.526 íbúðir, samanborið við 3.084 íbúðir á tólf mánaða tímabilinu þar á undan. Nýjum framkvæmdum hafi þannig fækkað um 558 íbúðir, eða 18 prósent, á milli ára. Nýjar framkvæmdir séu þó enn um 11 prósent fleiri en árið 2024 og um 5 prósent fleiri en árið 2023. Mikil óvissa Loks segir að samkvæmt uppfærðri spá HMS á fjölda fullbúinna íbúða gætu að meðaltali um 2.500 íbúðir orðið fullbúnar á hverju ári á tímabilinu 2026 til 2028. Spáin geri ráð fyrir að nýjar fullbúnar íbúðir verði um 2.600 árið 2026, um 2.300 árið 2027 og um 2.700 árið 2028. Þó sé mikil óvissa um framvindu íbúða á spátímabilinu, sérstaklega fyrir árið 2028. HMS geri nú ráð fyrir að færri íbúðir verði fullbúnar árin 2027 og 2028 heldur en í síðustu íbúðaspá sem framkvæmd hafi verið í kjölfar íbúðatalningar í marsmánuði 2026. Í nýju spánni geri HMS ráð fyrir að um 2.100 til 2.600 nýjar íbúðir verði fullbúnar á árinu 2027, samanborið við 2.800 til 3.700 íbúðir í eldri spá. Fyrir árið 2028 geri HMS nú ráð fyrir að um 1.900 til 2.800 nýjar íbúðir verði fullbúnar, samanborið við 2.700 til 3.700 íbúðir samkvæmt eldri spá. „Helstu ástæður þess að áætluðum verklokum nýrra fullbúinna íbúða fækkar á milli íbúðaspáa er sú að nýjum íbúðaverkefnum hefur fækkað markvert auk þess sem gert er ráð fyrir hægari framvindu íbúðauppbyggingar í ljósi fjölgunar íbúða með óbreytta framvindu á milli talninga.“
Húsnæðismál Fasteignamarkaður Efnahagsmál Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira