Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran

Fréttamynd

Gefur lítið fyrir hótanir Trumps

Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, dregur ekkert úr andstöðu sinni við árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran, þrátt fyrir að Bandaríkjaforseti hafi hótað að skera á viðskiptatengsli við Spán vegna hennar.

Erlent
Fréttamynd

Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hag­kerfinu

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur að Íslendingar ættu ekki að verða mjög varir við áhrif stríðsins sem nú geysar í Mið-Austurlöndum á allra næstu dögum. Hins vegar reiði verðmætasköpun bæði hér og annars staðar sig mjög á ólíu og því gætu áhrif til lengri tíma verið meiri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vaktin: Á­tökin breiðast enn út

Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. 

Erlent
Fréttamynd

Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein

Guðlaug Sigfúsdóttir hefur verið búsett í Barein í Miðausturlöndum í fjórtán ár. Hún segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir, landið sé svo friðsælt. Fjölskyldan hefur lítið sofið fyrir sprengjum og sírenum síðustu nætur og heldur sig bara heima.

Innlent
Fréttamynd

Ís­lenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum

„Það er er enginn sem hjálpar okkur eitt né neitt hérna,“ segir Davíð Guðlaugsson, sem hefur setið fastur í Dúbaí ásamt unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur. Þau undrast ráðaleysi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis og ætla í nótt að freista þess að komast til Óman á eigin vegum.

Innlent
Fréttamynd

Skipta al­þjóða­lög máli eða ekki?

Árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran um helgina voru skýlaust brot á alþjóðalögum en hvorki íslenskir né evrópskir ráðamenn hafa treyst sér til þess að fordæma þær frekar en mannrán á forseta Venesúela í vetur. Prófessor í stjórnmálafræði ræðir við Vísi um hvort alþjóðalög skipti máli eða ekki.

Innlent
Fréttamynd

Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengju­á­rás

Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag.

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Sprengjum rignir enn

Bandaríkjamenn og Ísraelar gera enn árásir á Írana, sem svara fyrir sig með eigin eldflaugum og drónum á nágrannaríki sín. Árásirnar hófust á laugardaginn og verið nánast linnulausar síðan þá. Ísraelar hafa einnig gert árásir á skotmörk í Líbanon og segja þær beinast gegn bandamönnum Íran í Hezbollah, sem skutu eldflaugum að Ísrael í nótt.

Erlent
Fréttamynd

Hundruð þúsunda far­þega stranda­glópar vegna stríðs í Íran

Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Íslendingar eru víða í vandræðum í Asíu og Miðausturlöndum vegna lokana.

Erlent
Fréttamynd

Hóta að grípa til hernaðar­að­gerða gegn Íran

Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran. Það kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga ríkjanna þar sem þeir segja handahófskenndar eldflaugaárásir Írana á nágrannalönd ógna öryggi borgara sinna og bandamanna.

Erlent
Fréttamynd

Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu

Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Þrír banda­rískir her­menn fallnir í á­tökum við Íran

Þrír bandarískir hermenn féllu og fimm hermenn særðust alvarlega í tengslum við átök Írans við Ísrael og Bandaríkjamenn, að sögn Bandaríkjahers. Auk þess létu hið minnsta níu Ísraelsmenn lífið í árás á í ísraelsku borginni Beit Shemesh í dag, að sögn viðbragðsaðila.

Erlent
Fréttamynd

Ís­lendingar óska eftir að­stoð

Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hefur nokkur fjöldi íslenskra ríkisborgara á áhrifasvæðum í Miðausturlöndum haft samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins. Þeim hafi verið veittar upplýsingar og aðstoð eftir fremsta megni.

Innlent
Fréttamynd

Gerir stólpa­grín að Von der Leyen

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gerir stólpagrín að Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem tilkynnti í gær að hún hefði boðað til fundar í öryggisráði ESB.

Erlent
Fréttamynd

Hefja skot­hríð á „hjarta“ Teheran

Ísraelsher segist aftur hafa hafið loftárás á skotmörk djúpt inni í írönsku höfuðborginni Teheran, rúmum sólarhringi eftir að herinn felldi æðstaklerk Írans í samvinnu með Bandaríkjunum. Íranir hafa skotið flugskeytum í átt að nágrannaríkjum í nótt til að hefna æðstaklerksins.

Erlent
Fréttamynd

Klerkurinn felldur í fyrstu lotu

Íranir heita hefndum eftir að fjöldi háttsettra manna, þar á meðal æðsti leiðtogi landsins, var felldur í árásum Ísraels og Bandaríkjanna í gær. Ísraelsmenn segjast hafa drepið æðstaklerkinn í fyrstu sprengjuhríðinni í gær, sem lagði aðsetur hans í eyði. 

Erlent