„Við erum að gefa boltann upp“ Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið hafi saknað þess að taka heildarumræðu um skólamál þar sem farið er dýpra í hlutina. Hann segir sambandið vera að gefa boltann upp og kalli nú eftir samfélagslegu samtali um menntamál. 7.10.2026 18:02
„Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið sé tilbúið að skoða lengingu skólaársins ef samfélagið telji það sér til framdráttar. Kennarasambandið kynnti í dag tillögur að stefnumótun í menntamálum til framtíðar þar sem það kallaði eftir samfélagslegu samtali um skólastarf. 7.10.2026 16:20
Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Formaður Varðbergs segir Marco Rubio hafa staðfest varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi í heimsókn sinni til landsins, á sama tíma og mörg Evrópuríki dragi traust Bandaríkjamanna á varnarsamningum í efa. Hann telur að breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland. 7.10.2026 13:31
Kennarar boða tíðindi Kennarasamband Íslands boðaði í dag til blaðamannafundar þar sem sambandið kynnti sína sýn og áherslur til bætingar menntakerfis Íslands. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi. 7.10.2026 13:31
Engar leyniskyttur gættu Rubio Um hundrað lögreglumenn komu að öryggisgæslu í tengslum við komu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands að sögn yfirlögregluþjóns öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Hann segir ákvörðun um vopnaborð liggja hjá íslenskum yfirvöldum og byggi á áhættumati hverju sinni. 6.10.2026 18:02
„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum. 6.10.2026 14:26
Rubio farinn af landi brott Heimsókn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands er lokið en hann flaug af landi brott um hádegisbil í dag. Rubio heldur ferðalagi sínu um Evrópu áfram og mun á næstu dögum funda með ráðamönnum bæði í Portúgal og Grikklandi. 6.10.2026 13:56
Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Um fjörutíu manns veiktust í hópsmiti sem kom upp í húsakynnum Reykjavíkurborgar í Borgartúni í síðustu viku. Nóróveira hefur greinst í tveimur sýnum en ekki hefur tekist að tengja smitið við tiltekin matvæli. 5.10.2026 14:39
Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bandaríkjamenn hafa flutt allar sprengjuflugvélar sínar frá herstöðinni RAF Fairford í Bretlandi en vélunum var flogið til Bandaríkjanna í gær. Bandaríkjamenn hafa flogið sprengjuflugvélum frá herstöðinni til Mið-Austurlanda undanfarna mánuði en í síðustu viku voru fimm menn handteknir grunaðir um hryðjuverk í nágrenni herstöðvarinnar. 5.10.2026 09:06
Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Í yfirlýsingu Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ sem send var út í gær segir að flokkurinn hafi slitið meirihlutasamstarfi sínu við Sjálfstæðisflokkinn vegna trúnaðarbrests sem ekki hafi verið hægt að líta framhjá. 5.10.2026 08:03