Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Manchester United-maðurinn Joshua Zirkzee tryggði Hollandi 2-1 sigur gegn Serbíu í kvöld í spennandi riðli 2 í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta. Lærisveinar Jürgen Klopp í þýska landsliðinu gerðu hins vegar markalaust jafntefli við Grikkland á útivelli. 4.10.2026 20:42
Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Mörkin úr ótrúlegri endurkomu Breiðabliks gegn Þrótti og úr 5-0 stórsigri FH gegn ÍBV má nú sjá á Vísi. 4.10.2026 20:16
Dýrmætur sigur HK-inga HK kom sér upp fyrir Víking og Stjörnuna með því að leggja Stjörnuna að velli í Kórnum í kvöld, 35-31, í Olís-deild karla í handbolta. 4.10.2026 19:49
Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Sveindís Jane Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Angel City náðu með dramatískum hætti í stig gegn toppliði Gotham á útivelli í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta og halda þar með áfram langri hrinu án taps. 4.10.2026 19:27
Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir mæta með fullt sjálfstraust til móts við landsliðið í leikina mikilvægu við Króatíu í HM-umspilinu, eftir 2-0 sigur með Inter gegn Como á Ítalíu í dag. 4.10.2026 18:24
Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Langri og mest krefjandi landsleikjatörn sem Heimir Hallgrímsson hefur þurft að takast á við lauk í Serbíu í kvöld þegar Írarnir hans gerðu 1-1 jafntefli við Ísraela í B-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta. 4.10.2026 18:17
Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Goncalo Ramos heldur áfram að láta ljós sitt skína eftir brotthvarf Cristiano Ronaldo og hann skoraði sigurmark Portúgals í 2-1 sigri á Noregi í kvöld. Danmörk vann Wales 1-0 á útivelli í sama riðli. 4.10.2026 18:17
Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Leikmenn ísraelska landsliðsins bera svört sorgarbönd í kvöld þegar þeir mæta Írunum hans Heimis Hallgrímssonar í Þjóðadeildinni í fótbolta. Tveimur ísraelskum blaðamönnum hefur verið bannað að mæta á fund Heimis eftir leikinn. 4.10.2026 18:04
Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Það getur ýmislegt gerst í Þjóðadeildinni í fótbolta og í gærkvöldi þurfti að stöðva leik Norður-Makedóníu og Skotlands þegar óboðinn gestur – hress og vinalegur hundur – komst einhvern veginn inn á völlinn. 4.10.2026 08:00
Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Það er af nægu að taka á sportrásum Sýnar í dag. Formúlu 1 kappakstur, NFL Red Zone, stórleikur í Þjóðadeildinni í fótbolta og mikilvægir leikir í titilibaráttunni í Bestu deild kvenna. 4.10.2026 06:00