Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Sindri Sverrisson skrifar 4. október 2026 18:17 Heimir Hallgrímsson og hans menn urðu að sætta sig við jafntefli í kvöld. Getty/Stephen McCarthy Langri og mest krefjandi landsleikjatörn sem Heimir Hallgrímsson hefur þurft að takast á við lauk í Serbíu í kvöld þegar Írarnir hans gerðu 1-1 jafntefli við Ísraela í B-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta. Markahrókurinn Troy Parrott kom Írum yfir úr vítaspyrnu á 39. mínútu en snemma í seinni hálfleik náði Ísrael að jafna metin, þegar Dor Peretz skoraði úr teignum eftir að boltinn hrökk til hans eftir skot í varnarmann. Leikurinn fór fram á hlutlausum velli í Serbíu að ósk Íra sem treystu sér ekki til þess að hafa leikinn í Dublin og tóku ákvörðun um það í sumar. Mikil læti hafa verið í tengslum við leikinn í kvöld, og leik liðanna í Ungverjalandi fyrir viku sem Írland vann 3-0, og má ætla að fríið sem nú tekur við sé kærkomið fyrir Heimi og hans menn. Írar sitja nú í 2. sæti síns riðils með fimm stig líkt og Kósovó en Austurríki er efst með átta stig eftir 1-1 jafntefli í Kósovó í dag. Ísrael er neðst með tvö stig. Þjóðadeild karla í fótbolta Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands