Fréttamaður

Oddur Ævar Gunnarsson

Oddur Ævar er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu

Bandarísk stjórnvöld segja fátt um svör frá Rússum vegna andláts rússneskrar konu sem starfaði á rannsóknarstofu í Síberíu og sögð er hafa látist eftir slys á rannsóknarstofunni. Bandarískir miðlar hafa greint frá því að stjórnvöld í Bandaríkjunum ætli að herða leit sín að svörum frá þeim rússnesku og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sagst munu ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um málið.

Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra

Ný bíómynd um keppnina á topp K2 að vetrarlagi og hinstu för Johns Snorra er ein vinsælasta kvikmynd í heimi um þessar mundir á streymisveitunni Apple. Vinur Johns Snorra segir myndina skipta miklu máli fyrir arfleifð fjallgöngugarpsins.

Ó­þolin­mæði að fylla Læknavaktina

Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins biðlar til fólks að sýna sér mildi nú þegar haustpestirnar eru á fullu flugi. Hún segir óþolinmæði oft einkenna Íslendinga sem séu dugnaðarforkar sem ekki henti vel að vera veikir. Ýmislegt sé til ráða áður en mætt sé á Læknavaktina eða heilsugæsluna.

Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálf­sögðu hringdi ég í pabba!“

Halla Karen Johnsdóttir dóttir fjallgöngugarpsins Johns Snorra minntist föður síns frammi fyrir smekkfullu Háskólabíói í tvígang um helgina á sérstakri hátíðarsýningu RIFF á heimildarmyndinni um för föður hennar upp á K2 að vetrarlagi þar sem hann fórst árið 2021. Hún segir það mikilvægasta sem faðir hennar kenndi henni hafa verið að njóta ævintýranna á meðan hægt er.

Verði að gera fyrir­vara við rann­sókn um karl­mennsku

Doktor í félagstölfræði segir að gera verði fyrirvara við rannsókn alþjóðlegrar hugveitu á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir íslenskra karlmanna um karlmennsku. Hann setur stór spurningamerki við framkvæmd könnunarinnar, um sé að ræða vinnubrögð sem þekkist ekki í íslenskum félagsrannsóknum. Óheppilegt sé að Norræna ráðherranefndin hafi verið skrifuð fyrir skýrslunni.

Rubio: Ís­land í miðjunni

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Safnahúsinu. Lega Íslands skipti miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum og sagði ráðherrann mörg tækifæri fyrir frekara samstarfi á sviði öryggis- og efnahagsmála. Hann vildi ekki svara spurningu um samfélagsmiðlafærslur Bandaríkjaforseta og segir enga hernaðaruppbyggingu munu eiga sér stað á Íslandi án samþykkis Íslendinga.

Rubio spenntur að hitta Þor­gerði

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna segist spenntur fyrir Íslandsheimsókn sinni. Ísland sé góður vinur Bandaríkjanna og einn af stofnmeðlimum Nato.

Tugir í sótt­kví í Síberíu eftir and­lát starfs­manns rann­sóknar­stofu

Tugir manna eru sagðir hafa verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu lést tveimur dögum eftir að hafa verið lögð inn á spítala. Enn er óljóst hvernig starfsmaðurinn lést en erlendir miðlar greina frá því að hún hafi hugsanlega látist eftir slys á rannsóknarstofunni sem er sögð hafa það helsta markmið að rannsaka skæða faraldra, það er að segja plágur.

Þessi eru til­nefnd til menntaverðlauna

Íslensku menntaverðlaunin verða veitt á Bessastöðum þriðjudaginn 10. nóvember. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun, auk séstakra hvatningarverðlauna.

Sjá meira