Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Aðstoðarflugmaður í flugi Flydubai FZ1073, sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív á miðvikudag, lagði á ráðin um hryðjuverk. Hann réðst á flugstjórann inni í flugstjórnarklefanum með neyðaröxi og reyndi að brotlenda flugvélinni en farþegar og áhöfn yfirbuguðu hann. Alls voru ríflega hundrað og sjötíu manns um borð í vélinni. 3.10.2026 09:47
Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Ungar konur sem fóru í ferð til Ibiza með Pilates-klúbbi World Class gagnrýna hvernig fulltrúar líkamsræktarstöðvarinnar brugðust við eftir að talið var að eldur hefði kviknað í skemmtibáti sem tekinn var á leigu á sunnudag. 1.10.2026 00:09
Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Íbúar nærri framkvæmdasvæðinu Arnarlandi í Garðabæ hafa margir hverjir lýst því að sprengingar á svæðinu finnist vel á heimilum sem skelfi öll. Þá heyrist ekki nægilega vel í hljóðmerkjum sem eigi að koma á undan og á eftir hverri sprengingu. Sprengistjóri segir að leitast sé við að valda sem minnstu ónæði en hann skilji vel að það sé ekki spennandi að hafa þetta í þéttbýli. 30.9.2026 21:48
Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Nýtt hættumat tók gildi í dag, þann 30. september, en hættuvægi vegna sprungna og jarðfalls innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með tilliti til sprunguviðgerða. Við breytinguna lækkar heildarhættustig fyrir Grindavík en heildarhætta er áfram metin töluverð. Nýtt kvikuhlaup gæti endað með eldgosi en það er ekki hægt að segja til um hvenær það gæti orðið. 30.9.2026 21:03
Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Meirihluti stjórnarmanna Ríkisútvarpsins vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision árið 2027 nema Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni. Líkt og frægt er orðið tók Ísland ekki þátt í keppninni í ár vegna þátttöku Ísraels í keppninni og þá var heldur engin Söngvakeppni haldin, í fyrsta sinn um árabil. 30.9.2026 19:15
ESA geti ekki beðið endalaust ESA getur ekki beðið endalaust eftir því að íslensk stjórnvöld lagfæri innleiðingu bókunar 35 segir stjórnarmaður Eftirlitsstofnunar EFTA. Hann segir fólk og fyrirtæki hér á landi verða fyrir tjóni á meðan málið sé óleyst. 30.9.2026 19:04
Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Þingmaður stjórnarandstöðunnar sem var einn þeirra sem fjármálaráðherra kallaði „þetta lið“ segist vart trúa því að hún þurfi enn á ný að „verjast óskiljanlegum brigslyrðum“ hæstvirts fjármálaráðherra í sinn garð. Hún hafni því sem hann haldi fram um að hún hafi sagt hallarekstur hvergi koma niður og krefst þess að ráðherra vísi þá til hvenær hún hafi gert það. 30.9.2026 18:17
Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Magnús G. Erlendsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG. Hann hóf störf hjá ráðgjafarsviði KPMG árið 2005 og varð hluthafi árið 2014 en tekur hann við af Svanbirni Thoroddsen sem lætur nú af störfum hjá KPMG eftir sautján ára feril hjá félaginu 30.9.2026 17:19
Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í viðtali sem birt var fyrr í dag, miðvikudaginn 30. september, á Vísi. Þau segja málflutning ráðherrans ríma illa við þá stöðu sem blasi við launafólki og að hann vinni gegn því. 30.9.2026 15:36
Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lína Birgitta Sigurðardóttir, áhrifavaldur og eigandi fatamerkisins Define the Line, hefur lagt orð í belg í umræðunni sem hefur geisað varðandi umboðsskrifstofuna Atelier Agency sem Gummi Kíró á og rekur. Þau hafa verið trúlofuð frá því árið 2022 en Lína segir meðal annars alla mega „hafa sína skoðun af því við lifum í því frelsi að mega tjá okkur en munum bara vera góð hvort við annað“. 29.9.2026 21:56