Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ás­geirs óábyrg

Ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um leigubremsu ríkisstjórnarinnar eru „fullkomlega óábyrg“, að mati Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Hann spurði á Alþingi í dag hvort seðlabankastjóri teldi stjórnvöld á Norðurlöndum ekki kunna grundvallarhagfræði og líkti stýrivöxtum við verðstýringu.

Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv

Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fjölmiðlaáform Loga Einarssonar ráðherra harðlega á Alþingi í dag. Hann kallaði fyrirhugað tekjuþak á RÚV „gerviþak“ og sagði áformin ekki verða til þess að nýr sjónvarpsfréttatími kæmi til sögunnar.

Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin

Mjög erfitt er að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan verðbólgumarkmiðs þegar laun hækka meira, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann fagnar þó viðleitni opinberra aðila til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og telur ávinninginn geta skilað sér í lægri vaxtakostnaði.

Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri

Notkun þekktra laga eða radda flytjenda í pólitískum áróðri getur gefið almenningi til kynna að listamaður styðji viðkomandi málstað. Þetta sagði Sverrir Bergmann Magnússon á Alþingi í dag og hvatti stjórnmálaflokka og þingmenn til að tryggja nauðsynleg leyfi áður en kynningarefni er birt.

Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin

Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu.

Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf

Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé.

Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“

Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra.

Hafnar sæl­gætis- og fæðingar­or­lofsmálum sem rökum fyrir bókun 35

Dómsmál um fæðingarorlof og skaðlegt sælgæti hafa verið notuð með villandi hætti til að rökstyðja innleiðingu bókunar 35, að mati Sigríðar Andersen, þingflokksformanns Miðflokksins. Hún sakaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um hálfsannleik og blekkingar í umræðum á Alþingi í dag.

Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sann­gjarna kröfu

Fólki sem hefur búið á Íslandi í þrjú ár eða lengur yrði gert að greiða sjálft fyrir túlkun erlendra tungumála hjá stjórnvöldum og í heilbrigðisþjónustu, samkvæmt nýju frumvarpi tíu þingmanna Sjálfstæðisflokksins.

Leit að eftir­manni Harðar hefði hafist í haust eða vetur

Leit að eftirmanni Harðar Arnarsonar í starfi forstjóra Landsvirkjunar hefði hafist í haust eða vetur, að sögn Brynju Baldursdóttur stjórnarformanns. Hún segir næsta forstjóra þurfa að vera öflugan leiðtoga með reynslu af stjórnun og stórum verkefnum.

Sjá meira