Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu

Rekstrarfélag Herjólfs segist verða að hætta við kaup á tveimur varamótorum fyrir ferjuna ef ríkið tryggir ekki fjármögnun þeirra. Samkvæmt félaginu hafa mótorarnir þegar verið pantaðir og þrjátíu prósent kaupverðsins greidd en það segist ekki eiga fyrir eftirstöðvunum.

Aug­lýsinga­tekjur Rúv undir fyrir­huguðu þaki þrjú ár í röð

Auglýsingatekjur RÚV hefðu farið yfir fyrirhugað 2,8 milljarða króna mark aðeins einu sinni á síðustu fjórum árum, samkvæmt samanburði Vísis á tölum ráðuneytisins. Það var árið 2022. Í skriflegu svari til Vísis segir ráðuneytið að mun meira muni um tíu prósenta lækkun á framlagi ríkisins til RÚV en um tekjuþakið.

Einn í haldi eftir hand­töku í flug­stöðinni

Lögreglan ákveður síðar í dag hvort hún krefst gæsluvarðhalds yfir manninum sem var handtekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi. Hann er sá eini sem er nú í haldi vegna rannsóknar á fíkniefnasölu og peningaþvætti.

Minni gjaldahækkanir kosti ríkis­sjóð 2,5 milljarða

Það myndi kosta ríkissjóð um tvo og hálfan milljarð króna að lækka fyrirhugaðar gjaldahækkanir úr 5,2 prósentum í 2,5 prósent, að sögn fjármálaráðherra. Hann segir svigrúm til þess í fjárlagafrumvarpinu og markmið um hallalaus fjárlög standi áfram.

Þetta eru stæðin sem borgin hefur endur­heimt

Fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur eru aftur komin í notkun eða verða opnuð á næstu dögum. Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs fagnar breytingunni en fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins gagnrýna að útiborð og hjólabogar séu fjarlægð til að rýma fyrir bílum.

Segir á­greininginn í Lands­virkjun ekki snúast um arð­greiðslur

Stjórn Landsvirkjunar nýtur áfram trausts fjármálaráðherra þrátt fyrir ágreining hennar við Hörð Arnarson, fráfarandi forstjóra. Ráðherrann segir þær skýringar sem hann hafi fengið á ágreiningnum vera almenns eðlis en telur fulla ástæðu til að yfirfara málið.

Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar

Ríkisfyrirtæki geta ekki rekið eigin utanríkisstefnu, segir Ingvar Smári Birgisson, einn þriggja stjórnarmanna RÚV sem leggjast gegn áframhaldandi sniðgöngu Eurovision. Hann telur varhugavert að stjórn félagsins taki ákvörðun sem geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar og Alþingis.

Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020

Hlutabréfavelta í Kauphöllinni var sú minnsta í sex ár í ágúst og nam 29 milljörðum króna. Í ágúst 2020, á fyrsta ári faraldursins, var hún 28,8 milljarðar. Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir háa vexti helstu skýringuna á lítilli veltu nú.

Sjá meira