Uggandi yfir afstöðu VR Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni. 7.10.2026 09:41
Stýrivextir áfram átta prósent Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í átta prósentum. Verðbólga mældist 5,9 prósent í september. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun. 7.10.2026 08:30
Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem er sögð hafa verið framin á aðfaranótt föstudags í Reykjanesbæ. 6.10.2026 16:18
Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að gert sé ráð fyrir kaupum á varamótorum í ferjuna Herjólf í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Rekstrarfélag Herjólfs óskaði í gær eftir 65 milljónum króna til að geta keypt tvo varamótora í ferjuna. 6.10.2026 15:55
Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, og Fanney Kr. Hermannsdóttir, eiginkona hans, opna á morgun, miðvikudaginn 7. október klukkan 16:30, nýsköpunar- og þekkingarsetrið Arctell Sandvík að Neshaga 16 í Reykjavík. 6.10.2026 14:52
Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Niðurstaða ítarlegrar skýrslu Umhverfis- og orkustofnunar um olíuleit á Drekasvæðinu er að hverfandi líkur séu á að kolvetni finnist þar í vinnanlegu magni. Miðað við núverandi aðstæður og þekkingu telur Umhverfis- og orkustofnun ekki vera forsendur fyrir auglýsingu eftir umsækjendum um leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetni. 6.10.2026 13:56
Opnuðu Arnarnesveg að hluta Opnað var fyrir umferð um hluta nýja Arnarnesvegs klukkan 14:00. Svæðið er þó enn vinnusvæði enda standa yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. 5.10.2026 15:52
Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Sjálfstæðismenn og óháðir harma að meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna sé lokið og segja það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurnesjabæjar springi í annað sinn vegna vinnslu á vallarmálum. 5.10.2026 15:26
Skakkur á stolnum strætó Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að stela strætisvagni og aka honum undir áhrifum kannabiss í mars síðastliðnum. 5.10.2026 14:44
Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Íslenskur læknir á níræðisaldri hefur verið ákærður fyrir óspektir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum í desember árið 2023 og fyrir að ráðast á flugfreyju í sama flugi. 5.10.2026 11:12