Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Samfylking og óháðir og Framsókn og óháðir í Suðurnesjabæ hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Leitast verður eftir því að Alexandra Jóhannesdóttir muni áfram starfa sem sveitarstjóri en hún tók við stöðunni í sumar. Innlent 8.10.2026 12:55
Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Enginn hefur enn boðið sig fram gegn þingflokksformanni Samfylkingarinnar í varaformannskjöri sem fer fram á flokksstjórnarfundi um helgina. Fundurinn verður haldinn í Suðurnesjabæ þar sem meirihlutasamstarf Samfylkingar við Sjálfstæðisflokk sprakk í loft upp um helgina. Innlent 6.10.2026 11:49
Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Sjálfstæðismenn og óháðir harma að meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna sé lokið og segja það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurnesjabæjar springi í annað sinn vegna vinnslu á vallarmálum. Innlent 5.10.2026 15:26
Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent 5.10.2026 08:03
Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag HS Veitur og HS Orka ráðast í viðamiklar framkvæmdir í dag og verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum vegna þeirra. Búið er að skrúfa fyrir vatnið á hluta svæðisins. Innlent 9. september 2026 07:34
Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst. Á Reykjanesi og verður almyrkvinn allt frá tveimur mínútum til 1.45. Innlent 10. ágúst 2026 11:37
Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Isavia hefur boðið út ný öryggisleitartæki á flugvellinum sem á að gera starfsfólki kleift að greina meiri massa og vökva. Gert er ráð fyrir að tvö þúsund geti farið í gegnum öryggisleit á einum klukkutíma í nýjum tækjum. Innlent 7. ágúst 2026 08:14
Alexandra ráðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar Alexandra Jóhannesdóttir hefur verið valin til að taka við starfi bæjarstjóra Suðurnesjabæjar. Gert er ráð fyrir að bæjarstjórn staðfesti ráðninguna á fundi sínum þann 15. júlí næstkomandi. Innlent 3. júlí 2026 09:16
Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum af Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur. Greint var frá því í morgun að Margrét Kristín hefði verið á lista umsækjenda um starf lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 29. júní 2026 18:47
Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ökumaður var fluttur á sjúkrahús til skoðunar í kvöld eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í kanti á Garðskagavegi við Rósaselstjarnir í Suðurnesjabæ. Bíll ökumannsins hafnaði utan vegar og varð fyrir verulegu tjóni. Innlent 24. júní 2026 19:42
Þessi 24 vilja taka við bæjarstjórastólnum af Magnúsi Alls sóttu 26 um stöðu bæjarstjóra Suðurnesjabæjar sem auglýst var laus til umsóknar á dögunum, en tveir drógu umsókn sína til baka. Innlent 24. júní 2026 13:43
Keili formlega slitið Félaginu Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs ehf. hefur formlega verið slitið en námsbrautir skólans hafa flestar verið færðar undir hatta annarra námsstofnana. Háskólabrú Keilis heldur áfram undir Háskóla Íslands. Innlent 3. júní 2026 16:04
Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Fertugur maður á Suðurnesjum hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til fjögurra vikna vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni á grunnskólaaldri sem hann hafði í fóstri á heimili sínu. Hann er í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna. Innlent 1. júní 2026 13:57
Takmarkað aðgengi að P2-bílastæðum vegna malbikunar Takmarkaður aðgangur verður að P2-bílastæðunum komumegin við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli á mánudaginn 1. júní næstkomandi vegna malbikunarframkvæmda. Innlent 30. maí 2026 13:43
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Listi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hafa náð saman um myndun meirihluta í Suðurnesjabæ en samstarfssamkomulag flokkanna var undirritað fyrr í kvöld. Til stendur að ráðið verði í stöðu bæjarstjóra. Innlent 26. maí 2026 21:37
Lokatölur í Suðurnesjabæ: Samfylkingin stærst Listi Samfylkingar og óháðra fær þrjá bæjarfulltrúa í Suðurnesjabæ og listi Framsókn tvo samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkur fá tvo fulltrúa hvor. Innlent 16. maí 2026 05:03
Oddvitaáskorunin: Of margir Liverpool-aðdáendur á listanum Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 14. maí 2026 07:02
Oddvitaáskorunin: Hefði viljað verja meiri tíma í tónlistina Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 5. maí 2026 21:02
Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Það gerist ekkert af sjálfu sér. Þessi einföldu sannindi þekkjum við öll sem búum í litlu samfélagi. Hér skiptir framlag hvers og eins máli – fyrir okkur sjálf, fyrir umhverfið og fyrir samfélagið í heild. Skoðun 22. apríl 2026 12:32
Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Lögreglan Suðurnesjum vinnur nú að umfangsmikilli rannsókn sem varðar haldlagningu á rúmum þrjátíu kílóum af amfetamíni. Lögreglan handtók tvennt í tengslum við rannsókn málsins sem nú sæta gæsluvarðhaldi. Innlent 17. apríl 2026 14:55
Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu „Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann. Innlent 16. apríl 2026 18:18
Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Jón Steinar Konráðsson, sem rak fósturheimilið Gauksstaði með eiginkonu sinni Lindu Angelique Elizondo, neitar öllum ásökunum um að hafa beitt börnin sem dvöldu þar ofbeldi. Starfsemin var rannsökuð fyrir fimm árum af lögreglu en málið fellt niður. Hann telur málið vera til umræðu vegna uppbyggingar hans á Gauksstöðum. Innlent 13. apríl 2026 23:12
Einstefna komumegin við Keflavíkurflugvöll Hluti af vegi sem liggur á milli flugstöðvarbyggingar Keflavíkurflugvallar og langtímabílastæða norðan við hana verður einstefna með framkvæmdum sem hófust í dag. Breytingarnar eru sagðar eiga að auka öryggi vegfarenda og bæta umferðarflæði. Innlent 18. mars 2026 11:02
Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Björgunarskipið Hannes Þ var kallað út eftir að tilkynning barst um vélarvana bát sem rak hægt að landi rétt út af Sandgerði í gærkvöldi. Innlent 2. mars 2026 08:07
Endurskoða skipurit áður en ákvörðun um varaslökkviliðsstjóra verður tekin Skipurit Brunavarna Suðurnesja verður tekið til endurskoðunar áður en ákvörðun um auglýsingu á starfi varaslökkviliðsstjóra verður tekin. Stjórn slökkviliðsins telur ráðningu slökkviliðsstjóra sem varaslökkviliðsstjórinn kvartaði undan hafa verið faglega. Innlent 27. febrúar 2026 07:33