Evrópu­sam­bandið

Evrópu­sam­bandið

Fréttamynd

Vill fimm­tán ára reynslutíma­bil fyrir ný aðildar­ríki

Ný aðildarríki að Evrópusambandinu gætu verið svipt atkvæðarétti eða fjárveitingum ef þau brjóta gegn grunngildum sambandsins á fimmtán ára reynslutímabili ef tillögur framkvæmdastjórnar þess verða að veruleika. Sambandið vill koma í veg fyrir að nýr Viktor Orbán komi fram sem verði þrándur í götu þess.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekki einu sinni Margrét Einars­dóttir getur full­yrt það

Á vb.is er fjallað um ummæli Margrétar Einarsdóttur, prófessors í lögfræði við Háskólann í Reykjavík, um bókun 35 við EES-samninginn. Ummælin komu fram í samtali hennar við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, í Kaffikróknum, hlaðvarpsþætti félagsins.

Skoðun
Fréttamynd

„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar segir íslensk stjórnvöld vilja innleiða bókun 35 til að tryggja að íslenskir borgarar og fyrirtæki fái fullan rétt sem EES-samningurinn færir þeim. Sigríður Á. Andersen, þingkona Miðflokksins, telur að íslenska ríkið eigi að láta reyna á dómsmál fyrir EFTA-dómstólnum um innleiðingu EES-löggjafar á Íslandi áður en þingið tekur bókun 35 til umræðu. Komist dómstóllinn að því að íslenska ríkið hafi brotið á EES-samningnum sé komin upp önnur staða og þá þurfi að ræða það sérstaklega.

Innlent
Fréttamynd

Þokast æ fjær lofts­lags­skuld­bindingum Ís­lands

Þrátt fyrir að losun á gróðurhúsalofttegundum hafi dregist saman í fyrra er útlit fyrir að árangurinn á þessum áratug verði aðeins rétt rúmur helmingur þess sem Ísland er skuldbundið til þess að ná. Markið heldur áfram að fjarlægjast í nýrri spá Umhverfis- og orkustofnunar um hvernig losun mun þróast næstu árin.

Innlent
Fréttamynd

Á­hersla ESB á mið­stýringu er „við­varandi á­skorun“ fyrir EES-samninginn

Aukin miðstýring innan Evrópusambandsins, sem meðal annars er ætlað að efla samkeppnishæfni álfunnar, gæti skapað hættu á „viðvarandi áskorunum“ fyrir EES-samninginn og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu, að mati varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Hann segir breytta heimsmynd kalla á að Ísland leiti sér alþjóðlegs skjóls en styrki um leið eigin viðnámsþrótt.

Innherji
Fréttamynd

„Við höfum iðu­lega verið tossinn í bekknum“

„Þetta eru ekki einhverjar grundvallarbreytingar, þetta er bara hlutur sem er verið að reyna að vinna í og gera betur. Ef Norðmenn finna betri leiðir þá ættum við endilega að fylgjast með því en við erum ekki með sæti við borðið og ég sé enga töfralausn á því.“ 

Innlent
Fréttamynd

Norð­menn kynna „stærstu breytingarnar frá upp­hafi“ á EES sam­starfinu

Norðmenn vilja nútímavæða og efla eftirlit með EES-samningnum og segir Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs að breytingarnar verði þær stærstu síðan samningurinn var innleiddur árið 1994. Ástæðan er breyttur heimur. Ráðherrann kynnti áherslubreytingarnar í dag á blaðamannafundi ásamt Cecilie Myrseth atvinnuvegaráðherra Noregs.

Erlent
Fréttamynd

„Þetta snýst um full­veldi“

Dýpra samstarf Kanada og Evrópu er nauðsynlegt til að sporna gegn því að stærri og öflugri ríki grafi undan fullveldi smærri þjóða. Þetta sagði Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í ræðu sem hann hélt á Evrópuþinginu í morgun. Þar tók hann vel í tillögu um að Kanada yrði fyrsta ríkið til að hljóta aukaaðild að Evrópusambandinu.

Erlent
Fréttamynd

Hótar háum tollum og að hætta við­skiptum við ESB

Donald Trump segir að það að hleypa Kanada inn í Evrópusambandið með einhverjum hætti gæti verið „fjandsamlegt“ gagnvart Bandaríkjunum. Forsetinn hótar því að beita ESB enn frekari tollum og jafnvel hætta viðskiptum við Evrópu á einhverjum sviðum.

Erlent
Fréttamynd

Vilja verða jafningjar Eng­lendinga

Tími Westminster er að líða undir lok. Þetta segja leiðtogar Skotlands, Wales og Norður-Írlands sem hafa skrifað undir sameiginlega yfirlýsingu um að yfirvöld í Bretlandi hefji undirbúning fyrir sundurliðun Stóra-Bretlands. Allir vilja þeir sjálfstæði frá Lundúnum og fá að ákvarða eigin framtíð.

Erlent
Fréttamynd

„Þið fáið ekki að skil­greina hvað ís­lenska þjóðin sagði“

Utanríkisráðherra sendi fjarhægrimönnum í Evrópu pillu í ræðu á Alþingi í kvöld og sagði þá ekki fá að skilgreina hvað niðurstaða nýafstaðinnar atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB þýði. Í skugga þjóðaratkvæðagreiðslunnar býst ráðherrann við „þverpólitískri samstöðu“ um bæði EES-samninginn og auðlindaákvæði í stjórnarskrá á komandi þingvetri.

Innlent
Fréttamynd

Segir þörf á sam­heldni innan „evrópsku fjöl­skyldunnar“

Ísland mun áfram starfa með Evrópusambandinu að sameiginlegum hagsmunum þess en erfiðir tímar séu nú yfirstandandi sem þarfnist samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“. Íslendingar vilja halda samstarfinu á þeim grunni sem það er nú þegar og þótt að ekki verði farið í frekari viðræður verður aðildarumsókn Íslands enn óbreytt.

Innlent
Fréttamynd

Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp

Ríkisstjórnin er í þrengri stöðu eftir sumarið en hún var fyrir að mati stjórnmálafræðings. Margt bendi til þess að stefni í átakamikinn þingvetur, meðal annars umræðan um Bókun 35 og vendingar í heimsmálum. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu breyti stöðu Íslands gagnvart EES-samningnum og ekki þurfi mikið til að samningurinn rakni upp og verði að engu. 

Innlent
Fréttamynd

For­dæma út­förina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu

Æðstu embættismenn Evrópusambandsins fordæmdu í dag útför Ratko Mladic, stríðsglæpamanns úr Bosníustríðinu sem hlaut viðurnefnið „Slátrarinn“. Nokkrir ráðherrar í ríkisstjórn Serbíu tóku þátt í athöfninni og hermenn fylgdu kistu stríðsglæpamannsins.

Erlent
Fréttamynd

Fjár­festa í mennta­málum, fjar­skiptum og jarðmálmum á Græn­landi

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins boðar 200 milljarða evra samning við Grænland sem felur í sér fjárfestingar á sviði menntamála, fjarskipta og jarðmálmagraftar. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir álit Grænlendinga til ESB hafa bæst frá því að Bandaríkjaforseti hótaði að leggja eyjuna undir sig.

Erlent
Fréttamynd

Stöðnun og dýr­tíð að baki stór­sigri AfD

Langvarandi stöðnun, hátt verðlag, þungt regluverk og versnandi innviðir eiga stóran þátt í sögulegu fylgi AfD í Saxlandi-Anhalt, að mati íslenskrar athafnakonu sem hefur búið í Þýskalandi í rúm tuttugu ár. Hún segir of einfalt að skýra niðurstöðuna eingöngu með útlendingamálum.

Erlent
Fréttamynd

Reykja­vík í tíunda sæti yfir loft­gæði

Norrænar borgir raða sér í efstu sæti á lista yfir mestu loftgæði í Evrópu. Reykjavík skipar sér í tíunda sæti listans hjá Umhverfisstofnun Evrópu. Loftgæði eru almennt betri norðar og vestar í álfunni en sunnar og austar.

Innlent
Fréttamynd

„Merki­legt að sjá hvað aula­aftur­haldinu dettur næst í hug“

Prófessor við Háskólann á Bifröst og formaður Evrópuhreyfingarinnar, hafnar því að hafa verið „á launum hjá Evrópusambandinu“. Hann hafi sótt um styrk í menntasjóð á vegum sambandsins áður en hann tók við formennsku hjá Evrópuhreyfingunni og peningarnir séu ekki notaðir til að greiða laun hans.

Innlent
Fréttamynd

Mætt til Græn­lands með pyngju fulla af peningum

Bandaríkjaforseti er ekki einn um það að líta hýru auga til Grænlands. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, er sögð munu í heimsókn sinni í dag boða aukinn fjárstuðning við Grænland. Þetta gerist í skugga hótana Bandaríkjaforseta um að leggja undir sig eyjuna. Erlendir miðlar setja þetta einnig í samhengi við nýafstaðna atkvæðagreiðslu þar sem Íslendingar höfnuðu aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

Erlent