Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Grand Fenwick við Faxa­flóa

Árið 1955 sendi írski rithöfundurinn Leonard Wibberley frá sér skáldsöguna The Mouse That Roared. Þar segir af hertogadæminu Grand Fenwick, örríki í Ölpunum sem lendir í fjárkröggum þegar Kaliforníumenn fara að framleiða eftirlíkingu af eina útflutningsvarningi þess, víninu Pinot Grand Fenwick.

Skoðun
Fréttamynd

Yfir­heyra banda­menn sína í NATO

Ráðamenn í Bandaríkjunum eru sagðir hafa sent spurningalista á ríkisstjórnir annarra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins, þar á meðal Íslands. Þar eru þessir ráðamenn meðal annars spurðir út í stuðning ríkjanna við utanríkisstefnu Donalds Trump en spurningarnar munu vera liður í áætlunum Bandaríkjamanna í að draga úr viðbúnaði í Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Bestu hlut­verk Hayden Panettiere

Leikkonan Hayden Panettiere er látin, 36 ára að aldri, en hún var sannkölluð barnastjarna. Panettiere byrjaði að leika í auglýsingum aðeins ellefu mánaða gömul, sjónvarpsþáttum fjögurra ára og kvikmyndum níu ára. Leiklistarferill hennar spannaði því rúm þrjátíu ár og nánast alla hennar ævi. Vísir hefur tekið saman tíu bestu hlutverk hennar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

„Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur"

Donald Trump segir að sér liggi ekkert á þegar kemur að því að binda enda á stríðið gegn Íran. Hann hvetur ráðamenn þar þó til að gefast upp hið snarasta. Um Óman, sem hefur átt í viðræðum við Íran um framtíðarstjórn á Hormússundi, segir forsetinn ráðamönnum þar að standa ekki í vegi sínum.

Erlent
Fréttamynd

Senda her­menn gegn glæpa­sam­tökum í „bak­garðinum“

Ráðamenn í Bandaríkjunum vilja ólmir senda hermenn til Mið- og Suður-Ameríku, þar sem þeir eiga að herja á leiðtoga og meðlimi glæpasamtaka sem smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna. Á undanförnum mánuðum hafa Bandaríkjamenn fellt rúmlega tvö hundruð manns í loftárásum á meinta smyglara sem eiga að hafa verið að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Leik­konan Hayden Panettiere er látin

Leikkonan Hayden Panettiere er látin. Hún var 36 ára gömul. Panettiere var þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Heroes og Nashville og fyrir kvikmyndirnar Scream 4 og Scream 6.

Lífið
Fréttamynd

Fram­tíðar­sýn Svíans að færa flugið nær fólkinu

Sænski frumkvöðullinn að smíði ES-30 rafmagnsflugvélarinnar, Anders Forslund, forstjóri Heart Aerospace, segir framtíðarsýn fyrirtækisins þá að færa flugið nær fólkinu. Hann vonast til þess að mun hagkvæmari og umhverfisvænni flugsamgöngur með rafknúnum flugvélum verði til þess að endurvekja áætlunarflug til fámennari áfangastaða.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Fagnað á götum Kabúl

Ríkisstjórn Talíbana í Afganistan fagnaði því í dag að fimm ár eru liðin frá því að höfuðborg landsins, Kabúl, var hertekin. Brynvarðir bílar skreyttir fánum keyrðu um stræti og fulltrúar ríkisstjórnarinnar tjáðu sig fjálglega um árangur hennar.

Erlent
Fréttamynd

Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“

Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa ráðið Brian Thompson, forstjóra United Healthcare, af dögum árið 2024, hefur játað sök í málinu á alríkisstigi. Mangione á yfir höfði sér ákærur bæði frá alríkisdómstóli og dómstólum New York-ríkis fyrir meint morð á forstjóra bandaríska tryggingafélagsins.

Erlent
Fréttamynd

Barbie-framhald í upp­námi vegna launakrafa

Barbie var aðsóknarmesta mynd ársins 2023, tilnefnd til fjölmargra verðlauna og olli hálfgerðu Barbie-æði. Fljótlega eftir frumsýninguna hófust viðræður um gerð framhaldsmyndar. Nú þremur árum síðar er Barbie 2 í lausu lofti vegna hárra launakrafa leikstjórans Gretu Gerwig, handritshöfundarins Noah Baumbach og stjarnanna Margot Robbie og Ryan Gosling.

Lífið
Fréttamynd

Biður hæsta­rétt um grænt ljós á veislu­salinn

Donald Trump biðlaði í dag til Hæstaréttar Bandaríkjanna um að fá leyfi til að halda áfram með byggingu veislusalsins á lóð Hvíta hússins. Framkvæmdirnar voru stöðvaðar af alríkisdómara í vor, eftir að verndarsamtök höfðuðu mál gegn ríkisstjórn Trumps.

Erlent
Fréttamynd

Í basli með að finna nýjan sendi­herra í Washington DC

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er í basli með að finna einhvern hæfan sem vill taka að sér starf sendiherra Úkraínu í Bandaríkjunum. Nokkrir sem forsetinn hefur leitað til hafa neitað því að fara til Washington DC en Selenskí rak nýverið fyrrverandi sendiherrann sem stendur frammi fyrir ásökunum um fjárdrátt.

Erlent
Fréttamynd

Trump skipar sjó­hernum að notast aftur við gufu

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur skipað forsvarsmönnum sjóhersins að fjarlægja nýtt kerfi sem notað er til að skjóta herþotum og flugvélum á loft frá flugmóðurskipum. Í staðinn á að notast við gamalt kerfi sem nýtir gufu en yfirmenn heraflans hafa lengi barist gegn þessari breytingu sem Trump hefur um árabil talað um að þurfi að fara í.

Erlent
Fréttamynd

Komu í veg fyrir launmorð á Banda­ríkja­manni í Var­sjá

Pólskir löggæslumenn handtóku á dögunum rússneskan mann sem sagður er hafa verið ráðinn af yfirvöldum í Rússlandi til að myrða bandarískan ríkisborgara. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir þetta fyrsta málið af þessu tagi, þar sem Rússar hafi reynt að myrða bandarískan ríkisborgara í NATO-ríki.

Erlent
Fréttamynd

Hafa á­hyggjur af geð­heilsu þúsunda sjó­liða

Þúsundir bandarískra sjóliða, flugmanna og hermanna hafa búið um borð í flugmóðurskipinu USS Abraham Lincoln í níu mánuði og ekki stigið á land í um 250 daga. Aðstandendur þeirra, þingmenn og aðrir hafa áhyggjur af því hve aðstæður um borð hafa versnað á þessum tíma. Áhöfnin er sögð hafa þurft að glíma við matarskort, bilaðar skólplagnir, mikið álag og þreytu.

Erlent
Fréttamynd

Úkraínu­menn gáfu Kananum á baukinn

Bandarískir hermenn í Þýskalandi héldu í vor æfingu sem úkraínsk drónasveit tók einnig þátt í. Æfingin fór ekki vel fyrir Bandaríkjamenn en Úkraínumennirnir notuðu dróna til að sigra þá, með nokkuð afgerandi hætti.

Erlent
Fréttamynd

Mangione sagður ætla að játa

Luigi Mangione, sem grunaður er um að hafa ráðið Brian Thompson, forstjóra tryggingafélagsins UnitedHealthcare, af dögum, er sagður ætla að játa. Lögmenn hans hafa átt í viðræðum við alríkissaksóknara en játning á alríkissvæðinu gæti verið notuð til að fá ákærur New York-ríkis gegn hinum meinta morðingja felldar niður.

Erlent
Fréttamynd

Ber­skjölduð og ótta­slegin eftir skilnaðinn og fram­tíðin ó­ráðin

Leikkonan Nicole Kidman segir síðasta ár lífs síns hafa verið erfitt en hún skildi við kántrístjörnuna Keith Urban í september síðastliðnum. Það hafi engu breytt að hafa skilið einu sinni áður og upplifunin væri alveg jafn ný fyrir henni. Hún giftist Tom Cruise þegar hún var 23 ára gömul og man varla hvernig lífið var fyrir frægðina.

Lífið