Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 29. október 2026 21:10 Hilmar Pétursson skoraði 26 stig fyrir Keflavíkurliðið í kvöld. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Keflvíkingar enduðu tveggja leikja sigurgöngu Hattarmanna með þrettán stiga sigri í Blue-höllinni í kvöld, 112-99. Keflvíkingar voru með frumkvæðið allan leikinn en gestirnir gáfust aldrei upp og héngu í þeim. Keflvíkingar voru sterkari í lokin og unnu síðustu fimm mínúturnar 22-11. Leikurinn fór nokkuð fjörlega af stað og skiptust liðin á því að koma stigum á töfluna fyrstu mínútur leiksins. Eftir því sem leið á leikhlutann náði Keflavík að skrúfa upp hitann og byrjuðu hægt og rólega að safna upp forskoti á gott lið Hattar. Jamir Chaplin var þar fremstur í flokki og setti 14 stig í fyrsta leikhluta og Keflavík leiddi 35-28. Höttur mætti með krafti út í leikhlutann og byrjaði að saxa á Keflvíkinga og setja stór skot til að koma sér vel inn í leikinn. Höttur var að hitta gríðarlega vel fyrir aftan þriggja stiga línuna og voru að skjóta 47% frá þriggja. Það færðist smá hiti í leikinn undir lok fyrri hálfleiks og keppnisskapið var mikið. Keflavík náði að koma sér inn í hálfleikinn með forystu 60-57 en tæpt stóð það. Það voru mikil jafnræði með liðunum út úr hálfleiknum og mikil barátta sem einkenndi leikinn. Höttur setti góð skot og jafnaði leikinn og var allt í járnum lengst af. Keflavík fann neista og Jamir Chaplin kveikti í húsinu með frábærri stemningstroðslu eftir flotta vörn hjá Keflavík og fylgdi því svo eftir með að negla niður þrist sem kveikti í húsinu. Keflavík hélt sér skrefi framar og leiddi með fjórum stigum 78-74 eftir þriðja leikhluta. Höttur setti stór skot og átti Sveinn Búi Birgisson tvo risa þrista sem jafnaði leikinn fyrir Hött snemma í leikhlutanum. Það setti leikinn aftur í járn og baráttan um hvern bolta og hvert stig varð alltaf meiri og meiri. Undir restina var það þó Keflavík sem reyndist sterkari og þeir náðu að slíta sig frá Hetti og fara að lokum með gríðarlega öflugan þrettán stiga sigur 112-99. Atvik leiksins Nýti þennan dálk í smá skammir Það er í öðrum leikhluta þar sem Höttur ætlar að skora á dóm um bolta sem er dæmdur Keflvíkingum í hag en þeim fannst þeir eiga boltann. Höttur kemst þá að því í miðjum leik að það sé ekki skjár til þess að skoða og því ekki hægt að skora á dóminn. Viðari er eðlilega ekki skemmt yfir þessu og þetta er ákveðin áfellisdómur á deildina og KKÍ að vera ekki með þessa hluti í lagi. Nýti þennan dálk hérna til þess að skora á KKÍ að gera betur í þessum efnum. Stjörnur og skúrkar Jamir Chaplin var frábær í liði Keflavíkur í kvöld. Hefur komið eins og stormsveipur inn í Bónus deild karla. Var lang stigahæstur á vellinum með 39 stig og var 100% 12-12 í tveggja stiga.Hilmar Pétursson átti þá einnig frábæran leik og endaði með 26 stig. Hjá Hetti var Aleksandar Pantelic atkvæðamestur með 19 stig. DómararnirBjarni Hlíðkvist, Gunnlaugur Briem og Sófus Máni voru á flautunni í kvöld. Þeir félagar hótuðu því óþægilega oft að missa leikinn í eitthvað rugl en þegar öllu er á botnin hvolft þá var þetta bara allt í lagi ekki gott.Stemning og umgjörðKeflvíkingar verða seint sakaðir um annað en að vera óðir í körfubolta. Umgjörðin er ávallt með besta móti hér í Blue höllinni og stemningin í kvöld var góð þegar gestirnir frá Egilsstöðum mættu.ViðtölDaníel Guðni Guðmundsson þjálfari KeflavíkurGuðmundur/Vísir„Hann er bara ótrúlega góður í körfubolta þessi drengur“„Höttur er hörku fínt lið og með góða leikmenn innan sinna raða þannig þetta var mjög erfitt verkefni hérna“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur.„Það kom smá hikst á okkur í þriðja leikhluta eða bæði lið og það hægist aðeins á stiga skorun eða menn byrjuðu að spila vörn loksins“„Þetta var mjög takmarkaður varnarleikur í þessum leik en við náðum að standa okkur á svona flestum sviðum þokkalega vel og það er bara mjög ánægjulegt að ná í sigur“Leikurinn var jafn lengi vel en Keflavík náði að svífa fram úr undir restina.„Ég held við náðum nokkrum stoppum í röð og það var þá sem við náðum svona alvöru takti og það var mjög mikilvægt fyrir okkur því við vorum í algjöru brasi þarna í byrjun fjórða, í lok þriðja en við breyttum aðeins varnarlega til og reyndum aðeins að koma í veg fyrir það sem þeir voru að reyna skora úr“Jamir Chaplin hefur komið frábærlega inn í Keflavíkurliðið í ár.„Þetta er bara frábær leikmaður og liðsfélagar hans eru að reyna og ná að búa til rými fyrir hann til þess að búa til pláss og ná að skína því hann er frábær sóknarmaður og sömuleiðis frábær varnarmaður. Hann er bara ótrúlega góður í körfubolta þessi drengur og við erum mjög ánægð að vera með hann hérna innan okkar raða því hann gefur okkur rosalega mikið og er alltaf hættulegur“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson.Viðar Örn Hafsteinsson, þjálfari Hattar.vísir/Hulda Margrét„Náði bara að búa til einhverja hryðjuverkastarfsemi“„Drullu svekktur að tapa þessu, þeir gera vel en við ýtum þessu frá okkur hérna í lokin“ sagði Viðar Örn Hafsteinsson þjálfari Hattar svekktur í leikslok.„Við tókum slakar ákvarðanir, það var þannig og við ýtum þessu frá okkur og þeir gerðu vel hérna. Við erum í bullandi vandræðum með Bandaríkjamanninn og planið sem ég setti upp á móti því var bara slakt og þar liggur þetta“Jamir Chaplin átti frábæran leik fyrir Keflavík og mátti vel færa rök fyrir því að hann væri helsti munurinn á liðunum í kvöld.„Hann var óstöðvandi, hann var 12 af 12 í tvistum og náði bara að búa til einhverja hryðjuverkastarfsemi bara eins og Eyjólfur Ármannsson og hans fólk í ríkisstjórninni og slátraði öllu hérna“ sagði Viðar Örn Hafsteinsson. Körfubolti Bónus-deild karla Keflavík ÍF Höttur