Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu

Arnar Skúli Atlason skrifar
Álftnesingar fóru norður, lentu undir en öflugir komu til baka og unnu karaktersigur.
Álftnesingar fóru norður, lentu undir en öflugir komu til baka og unnu karaktersigur. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Álftanes hélt sigurgöngu sinni áfram í Bónus deild karla í körfubolta eftir sigur í spennutrylli í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld á milli tveggja taplausra liða. Álftnesingar lentu mest fjórtán stigum undir en komu til baka og unnu loks í framlengdum leik. Leikurinn var mikil veisla og lofar svo sannarlega góðu fyrir körfuboltaveturinn.

Álftanes vann leikinn á endanum 108-105 eftir að staðan var 96-96 eftir venjulegan leiktíma. Stólarnir fengu tækifæri til að koma leiknum í aðra framlengingu en lokaskot þeirra geigaði.

Nemanja Durisic skoraði 29 stig fyrir Tindastól og Dee Bost var með 18 stig. Dedrick Basile var með 26 stig og 13 stoðsendingar fyrir Álftanes og á móti sínum gömlu félögum. Laksa Martins og Jordan Semple voru báðir með átján stig.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira