„Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 29. október 2026 12:02 Stefán Vagn Stefánsson er þingflokksformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi lögreglumaður. Stefán Sveinsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum. vísir/lýður valberg/sigurjón Þingflokksformaður Framsóknarflokksins gagnrýnir harðlega áform dómsmálaráðherra um að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú. Það muni bitna á þjónustu íbúa á strjábýlli svæðum að hans mati. Astoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum er ekki á sama máli og hefði viljað sjá sameininguna ganga enn lengra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherr, hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum með það fyrir stafni að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú. Eitt embætti verður á suðvesturhorni landsins, annað á norður- og vesturhluta landsins og þriðja á suður- og austurhluta landsins og er gengið lengra í sameiningum en áður stóð til. Frumvarpið hefur vakið misjöfn viðbrögð innan lögreglunnar en til að mynda hefur Lögreglufélag Vestfjarða lýst áhyggjum vegna áformanna. Hvorki hrifinn né sannfærður Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi lögreglumaður, tekur undir þær áhyggjur „Ég er hvorki hrifinn né sannfærður um að þetta sé skynsamleg leið og að þessi hugmyndafræði sem þarna hefur verið kynnt muni yfirhöfuð virka. Lögreglumenn eða stöðurnar munu flæða frá þessum minni stöðum inn í stærri kjarnana sem að þýðir þá minni löggæsla og lægra öryggisstig fyrir þá sem þar búa.“ Að hans mati hefur núverandi kerfi virkað vel frá því að það var sett á laggirnar 2015. „Ég held að leiðin sé aukin samvinna embættanna og embættin eru að vinna mjög vel saman, til dæmis bara í rannsóknum og öðru. Að taka embættin og gera þau að þremur á svona gríðarlega víðfeðmum landsvæðum er óráðlegt einfaldlega vegna þess að vegalengdir eru það miklar að við náum ekki samleið með lögreglumönnum á vakt.“ Fjöldinn sé akkilesarhæll lögreglunnar Stefán Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem vann áður sem tengiliður Íslands hjá Europol, er ekki á sama máli og Stefán Vagn og finnst ekki gengið nægilega langt í sameiningu. „Í flestum ríkjum í Evrópu er ein lögregla. Svíar, sem eru með 27 þúsund lögreglumenn, eru til að mynda með eitt lögregluembætti og sérstaklega kannski þegar það kemur að skipulagðri brotastarfsemi, hún virðir ekki landamæri. Ég held að það sé mjög mikilvægt í baráttunni gegn skipulagðri brotastarfsemi að við göngum eins langt og hægt er í þeirri viðleitni að byggja upp öfluga einingu.“ Að hans mati aftrar það störfum lögreglunnar að vera með of mörg embætti. „Það er mitt mat. Rannsóknir frá Bretlandi til dæmis hafa sýnt það að hreyfanleiki brotahópanna er slíkur að upplýsingaskipti og miðlun milli embættanna nær ekki að halda í við það. Þetta er akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum.“ Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri Norðurlands eystra, kveðst einnig ánægð með áformin um að fækka embættum. „Mér finnst þetta skynsamleg nálgun. Ég skil þessi rök um jafnvægi milli embætta. Það verður til rosalega stórt umdæmi á höfuðborgarsvæðinu með sameiningu höfuðborgarinnar og Suðurnesja. Til að hafa eitthvað mótvægi gegn því, þarftu að hafa góðan styrk bæði í stöðugildum og fjármunum og verkefnum. Það er mikilvægt að hafa fagþekkingu til að hafa jafnvægi þarna á milli. Mögulega mun það verða til þess að það þarf að flytja verkefni út frá höfuðborgarumdæminu út í landsbyggðarumdæmin og styrkja þá þeirra grunn til að hafa góða sérhæfingu og þekkingu í sinni starfsemi. Ég sé tækifæri í þessu.“
Lögreglan Framsóknarflokkurinn Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Sjá meira