Erlent

Báðir vilja mynda ríkis­stjórn en ekki vinna með aröbum

Samúel Karl Ólason skrifar
Gadi Eisenkot og Benjamín Netanjahú munu væntanlega báðir reyna að mynda ríkisstjórn. Báðir hafa þó neitað að vinna með stærsta flokki ísraelskra araba og erfitt gæti verið að mynda ríkisstjórn án þess samstarfs.
Gadi Eisenkot og Benjamín Netanjahú munu væntanlega báðir reyna að mynda ríkisstjórn. Báðir hafa þó neitað að vinna með stærsta flokki ísraelskra araba og erfitt gæti verið að mynda ríkisstjórn án þess samstarfs. AP/Oded Balilty

Bæði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður ísraelska hersins og leiðtogi stjórnarandstöðunnar, segjast ætla að mynda ríkisstjórn. Það er þrátt fyrir að hvorug fylking hafi náð að tryggja sér meirihluta þingmanna í Knessetinu í kosningunum sem haldnar voru í Ísrael í gær.

Netanjahú hefur forskot á Eisenkot en flokkar ísraelskra araba eru líklegir til að ráða úrslitum um næstu ríkisstjórn landsins. Forsætisráðherrann hefur áður slegið þann möguleika á að vinna með þeim af borðinu og líkt því við „landráð“.

Sjá einnig: Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka

Eisenkot hefur einnig sagt að hann vilji ekki vinna með arabalistunum og hefur vísað í meintan skort á sameiginlegum gildum.

Leiðtogi stærri lista ísraelskra araba hefur kallað eftir því að flokkur hans komi að því að fella ríkisstjórn Netanjahús. Fyrir kosningarnar tóku aðrir stjórnmálaleiðtogar ekki vel í vangaveltur um samstarf með þessum flokkum, sem kallast Sameinaði listinni og Ra‘am.

Sameinaði flokkurinn þykir staðfastari en Ra‘am þegar kemur að fyrirhuguðu ríki Palestínumanna og hafa ísraelskir stjórnmálaleiðtogar gert sig líklegri til að starfa með Ra‘am en Sameinaða listanum.


Talning langt komin

Þegar þetta er skrifað segja ísraelskir miðlar að búið sé að telja 76,8 prósent atkvæða. Kjörsókn var 77,7 prósent en árið 2022 var hún 70,6 prósent. Kjörsóknin var sérstaklega mikil meðal ísraelskra araba og komu arabaflokkarnir tveir vel út úr kosningunum.

Um tuttugu prósent ísraelskra borgara eru arabar.

120 þingsæti eru í boði í kosningunum og þarf 61 til að mynda meirihluta.

Eins og staðan er núna, samkvæmt yfirliti Times of Israel, er Likud-flokkur Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra, með 27 sæti og er stærsti flokkurinn. Fylking hans er með 54 sæti.

Yashar, stærsti flokkur stjórnarandstöðunnar, er með tuttugu sæti og öll fylkingin með 47 sæti.

Flokkar ísraelskra araba eru saman með nítján, Sameinaði flokkurinn með þrettán og Ra‘am með sex. Vert er að taka fram að fjöldi þingsæta hefur sveiflast nokkuð milli flokka þegar fleiri atkvæði hafa verið talin í morgun.


Hver fær stjónarmyndunarumboð?

Mikið þrátefli hefur einkennt kosningar í Ísrael um nokkuð langt skeið. Áður en Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, tókst að mynda ríkisstjórn árið 2022 með því að ganga til liðs við öfgamanninn Itamar Ben-Gvir og mynda með honum ríkisstjórn, þurftu Ísraelar að halda fimm kosningar á tæpum fjórum árum.

Forseti Ísrael hefur að mestu táknrænt hlutverk í landinu, nema þegar kemur að kosningum, sem er ekki ósvipað íslenska forsetanum. Það er á höndum forseta að ákveða hverjir fá fyrst stjórnarmyndunarumboð og á Isaac Herzog, forseti, erfitt val fyrir höndum.

Hann getur valið leiðtoga þess flokks sem fékk flest atkvæði en hann getur einnig valið leiðtoga sem fékk færri atkvæði en honum þykir líklegri til að geta myndað meirihluta.

Vandamálið er að Netanjahú fékk flest atkvæði en enginn virðist líklegur til að geta myndað ríkisstjórn, ætli stjórnmálamennirnir að standa við það sem þeir sögðu fyrir kosningarnar.


Aðeins einn vill vinna með Sameinaða listanum

Yair Golan, leiðtogi Demókrataflokksins, kallaði eftir því í morgun að stjórnarandstæðan tæki höndum saman með Arabaflokkunum. Fyrir kosningarnar var hann eini stjórnmálaleiðtogi Ísrael sem lýsti yfir vilja til að vinna með arabaflokkunum en Demókrataflokkurinn stefnir í að ná einungis átta sætum á þingi.

Yousef Jabareen, leiðtogi Sameinaða listans, kallaði í morgun eftir raunverulegri samvinnu gyðinga og araba. Þannig væri hægt að losna við ríkisstjórn Netanjahús og sakaði hann hana um að hafa valdið blóðbaði.

Eins og áður hefur komið fram eru þó fáir sem hafa viljað segjast tilbúnir til að vinna með Sameinaða listanum.

Í greiningu blaðamanns Guardian segir að Eisenkot standi frammi fyrir tveimur valkostum. Hann geti tekið skrefið og starfað með ísraelskum aröbum eða kastað líflínu til ríkisstjórnar Netanjahús. Annaðhvort með eins konar stjórnarsamstarfi eða með því að halda þráteflinu áfram og boða til nýrra kosninga.


Tengdar fréttir

Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þing­meiri­hluta

Búið er að telja um meirihluta atkvæða í þingkosningunum sem fóru fram í Ísrael í gær. Á vef ísraelska miðilsins Haaretz kemur fram að Netanahjú og hans fylking séu með um 55 sæti af 120 og stjórnarandstaðan með 64 samanlagt. Fylking Eisenkot er samkvæmt Haaretz með 49 sæti og Arabaflokkar með 16.

Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám

Metfjöldi Ísraela gekk að kjörborðinu í dag en reiknað var með því að ríflega sjö milljónir manns greiddu atkvæði. Miðað við fyrstu útgönguspár mun hvorki fylking Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra né stjórnarandstaðan ná þeim 61 þingsætum sem þarf til að mynda meirihluta á ísraelska þinginu, Knesset, sem telur 120 þingsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×