Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Kjartan Kjartansson skrifar 26. október 2026 10:43 Andreas Norlen, forseti sænska þingsins, tekur í hendi, og ermi, Elisabethar Thand Ringqvist, leiðtoga Miðflokksins, þegar þau hittust skömmu eftir þingkosningarnar í Svíþjóð 18. september. Vísir/EPA Leiðtogi sænska Miðflokksins segir að ekki sé meirihluti á þingi til þess að mynda miðjustjórn. Miðflokkurinn fékk stjórnarmyndunarumboð í síðustu viku eftir að jafnaðarmönnum mistókst að mynda vinstrimeirihluta.
Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, gaf Andreasi Norlén, þingforseta, skýrslu um afrakstur af viðræðum hennar við leiðtoga annarra flokka í morgun. Norlén fól Ringqvist umboðið í síðustu viku en þá hafði hvorki gengið né rekið hjá Magdalenu Andersson, leiðtoga Jafnaðarmannaflokksins, að mynda ríkisstjórn til vinstri. Ringqvist sagði blaðamönnum í morgun að þó að meirihluti væri á þingi fyrir ýmsum miðjumálum þá væri stuðningur fyrir miðjustjórn ekki til staðar. Hún ítrekaði þó einnig þá skoðun sína að ekki væri umboð fyrir miðvinstri- eða vinstristjórn heldur. Miðflokkur Ringqvist neitaði umleitunum Andersson eftir því að flokkarnir mynduðu ríkisstjórn með Vinstriflokknum. Hann var hins vegar tilbúinn að styðja minnihlutastjórn jafnaðarmanna einna. Aðrir en hún þurfi að opna á fleiri möguleika Ringqvist sagði í morgun að hún ætlaði að halda áfram að útiloka samstarf við Vinstriflokkurinn og Svíþjóðademókrata, hægri jaðarflokk, sömuleiðis. Aðrir flokkar þyrftu aftur á móti að endurskoða með hverjum þeir væru tilbúnir að vinna. Um einn og hálfur mánuður er nú liðinn frá þingkosningunum. Þingið hefur þegar greitt atkvæði einu sinni um mögulega ríkisstjórn Jafnaðarmanna og hafnað henni. Mest er hægt að boða til slíkra atkvæðagreiðslna fjórum sinnum. Ef enginn ríkisstjórn nýtur meirihlutastuðnings í þeim þarf sjálfkrafa að boða til nýrra kosninga. Þráteflið eftir kosningar flækir nú fjárlagagerð sænska ríkisins. Þingið þarf að samþykkja ný fjárlög fyrir 12. nóvember.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira