Erlent

Minkarækt Dana mun heyra sögunni til

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Ríkisstjórn Mette Fredrikssen hefur hætt við að sækja um undanþágu til ESB varðandi minkarækt. 
Ríkisstjórn Mette Fredrikssen hefur hætt við að sækja um undanþágu til ESB varðandi minkarækt.  Samsett

Brátt mun minkarækt í Danmörku heyra sögunni til en dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að falla frá áformum sínum um að sækja um undanþágu frá banni Evrópusambandsins við rækt minka. Bannið tekur gildi á næsta ári. 

Fyrri ríkisstjórn Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur greiddi atkvæði gegn reglugerð ESB árið 2025 og ákvað í kjölfarið að sækja um undanþágu svo að danskir minkabændur gætu haldið ræktuninni áfram. Núverandi samsteypustjórn, sem kjörin var í júní, ákvað hins vegar í gær að halda umsókninni ekki til streitu. Danska ríkisútvarpið greinir frá.

„Þessu lýkur endanlega núna og það finnst okkur í SF gott, því það hefur aldrei verið góð dýravelferð að loka rándýr inni í pínulitlu búri,“ er haft eftir Carl Valentin, talsmanni SF í dýravelferðarmálum, í frétt DR.

Sjö starfandi minkabú

Fyrirhugað bann Evrópusambandsins á loðdýrarækt tekur gildi þann 7. ágúst 2027 og við tekur tveggja ára aðlögunartímabil. Sjö minkabú eru enn starfandi í Danmörku með um 15 þúsund minka.

„Atvinnugrein á ekki að halda áfram bara vegna þess að hún hefur verið til lengi. Hún verður líka að vera skynsamleg fyrir samfélagið, efnahaginn og dýrin,“ er haft eftir Christian Rabjerg Madsen, umhverfisráðherra Danmerkur.

Danir voru um langt skeið einir stærstu framleiðendur minkafelds á heimsvísu. Árið 2020 voru allar 14 milljónir minka Danmerkur aflífaðar af skipum stjórnvalda vegna stökkbreytts afbrigðis kórónuveiru sem fannst í einhverjum dýrum. 

Þá komst í ljós að ríkisstjórnin hafði raunar ekki lagalega heimild til að fyrirskipa slíkt. Mette Frederiksen baðst afsökunar og sagði að danska dýra- og matvælaeftirlitið hefði gert mistök með því að krefjast þess að allir minkar landsins verði drepnir. Þá sagði Mogens Jensen, ráðherra matvæla-, sjávarútvegs- og landbúnaðarmála Danmerkur, af sér embætti vegna málsins. 


Tengdar fréttir

Krefjast þess að minkarnir verði grafnir upp

Þingmenn stjórnarandstöðunnar í Danmörku hafa kallað eftir því að milljónir minka, sem aflífaðir voru eftir að stökkbreytt afbrigði kórónuveirunnar fannst í þeim, verði grafnir upp og færðir annað.

Biður minka­bændur inni­legrar af­sökunar eftir svarta skýrslu nefndar

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur beðið minkabændur í landinu afsökunar á þeim skapraunum og sorg sem ákvörðun danskra stjórnvalda um að lóga öllum minkum landsins í kórónuveirufaraldrinum hafi valdið þeim. Hún segir ákvörðunina um að fella stofninn þó hafa verið nauðsynlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×