Erlent

Björguðu særðum her­manni með dróna

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot úr myndbandi sem úkraínskir hermenn birtu á dögunum. Dróninn var notaður til að flytja særðan hermann af víglínunni.
Skjáskot úr myndbandi sem úkraínskir hermenn birtu á dögunum. Dróninn var notaður til að flytja særðan hermann af víglínunni.

Úkraínskir hermenn notuðu á dögunum stóran dróna til að bjarga særðum hermanni af víglínunni. Maðurinn hafði varið nærri því fimm hundruð dögum á víglínunni en hann tilheyrir 30. stórfylki Úkraínuhers. Drónar hafa verið notaðir til að flytja til hans matvæli, vatn og skotfæri en eftir að hann særðist alvarlega var ákveðið að flytja hann á brott.

Þetta ku vera í fyrsta sinn sem þetta er gert en áður hafa Úkraínumenn notað fjarstýrða róbóta til að flytja særða menn. Það þótti hins vegar ekki hægt að þessu sinni þar sem ógnin vegna rússneskra sjálfsprengidróna og jarðsprengja var mikil, samkvæmt frétt Kyiv Independent.

Notast var við sérstakan og stóran dróna til að flytja manninn á brott. Dróninn er hannaður til að flytja stórar sprengjur til óvina og skotfæri og birgðir til úkraínskra hermanna en hermenn nutu aðstoðar framleiðanda hans við að undirbúa og framkvæma björgunina, samkvæmt tilkynningu frá stórfylkinu.

Fyrst voru beisli og annað flutt til hans með smærri drónum og síðan var stóra drónanum flogið til hans. Honum tókst síðan að festa sig við drónann og var honum flogið í öryggi. Í heildina var drónanum flogið um 62 kílómetra og stóð björgunin yfir í tæpar 75 mínútur.

Úkraínskir hermenn eru iðulega verulega lengi á víglínunni, eins og í þessu tilfelli. Fyrir því eru helst tvær ástæður. Önnur er mannekla en vegna hennar getur verið erfitt að gefa hermönnum frí. Hin er að það að ferðast á víglínuna eða frá henni er einstaklega hættulegt.

Þegar hermenn sjást á ferðinni, hvort sem þeir eru rússneskir eða Úkraínumenn, verða þeir fljótt skotmörk stórskotaliðs eða sjálfsprengidróna, eftir því hve margir eru á ferðinni. Þeir geta jafnvel orðið skotmörk beggja og þar að auki geta þeir vísað óvinum á hvar hermenn halda til.

Á meðan björgunin stóð yfir var fleiri drónum flogið á svæðinu og umfangsmikið eftirlit haft með rússneskum drónum.


Tengdar fréttir

Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín

Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar hyllti Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem „mannvin“ á fundi þeirra í Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn hefur færst æ nær stjórnvöldum í Kreml á undanförnum dögum.

Selenskí og banda­menn hitta full­trúa Trump í Osló

Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraína, ásamt evrópskum bandamönnum fundar nú með fulltrúa Bandaríkjastjórnar í Osló í skugga áframhaldandi harðra árása Rússa á landið. Bandaríkjastjórn hefur nálgast verulega stjórnvöld í Kreml að undanförnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×