Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Samúel Karl Ólason skrifar 23. október 2026 10:58 Skjáskot úr myndbandi frá vettvangi. Að minnsta kosti einn er látinn og þriggja er saknað. Björgunaraðgerð stendur nú yfir undan ströndum Rúmeníu þar sem flutningaskip er á hvolfi og marar í hálfu kafi eftir að eldur kviknaði þar um borð. Að minnsta kosti einn er látinn og þriggja er saknað eftir að skipinu hvolfdi en yfirvöld í Rúmeníu segja skipinu hafa verið sökkt með rússneskum dróna.
Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, sakaði í morgun Rússa um að bera ábyrgð á því að skipið hefði sokkið. Hann sagði Rússa vera að fjölga árásum sínum á svæðinu og um væri að ræða hluta af stigmögnun Rússa vegna innrásarinnar í Úkraínu. Rússar hafa verið sakaðir um fjölda árása og ógnana innan Evrópu á undanförnum mánuðum. Tíu Úkraínumenn og þrír Aserar eru í áhöfn skipsins en verið var að sigla því frá Tyrklandi til Sulina í Rúmeníu. Skipið, sem heitir Khoryv og er skráð í Comoros, var statt rúma tuttugu kílómetra austur af Costanta þegar því hvolfdi. Myndefni sem hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum sýnir það mara í hálfu kafi í morgun. Veður hefur gert björgunarstörf erfið. Rússar hafa gert árásir á þó nokkur flutningaskip á svæðinu, innan efnahagslögsögu Rúmenía og Búlgaríu, NATO-ríkja, á undanförnum dögum. Samkvæmt AP-fréttaveitunni eru árásirnar orðnar að minnsta kosti sjö í þessum mánuði. Þetta yrði þá áttunda árásin. Að minnsta kosti tveir eru látnir og 25 er saknað eftir þessar drónaárásir. Fréttin hefur verið uppfærð með ummælum forseta Rúmeníu.
Rúmenía Rússland NATO Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Skipaflutningar Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sjá meira