Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Smári Jökull Jónsson skrifar 26. október 2026 06:49 Lula fagnar með varaforsetanum Geraldo Alckmin. Vísir/EPA Sitjandi forseti Brasilíu, Lula da Silva, hafði betur gegn hægri manninum Flavio Bolsonaro í forsetakosningunum í Brasilíu í gær. Er þetta í fyrsta sinn sem frambjóðandi nær að snúa við úrslitum frá því í fyrri umferð kosninganna en Bolsonaro segir úrslitin óútskýranleg.
Samkvæmt hæstarétti Brasilíu hlaut Lula 51,79 prósent atkvæða en Bolsonaro 48,21 prósent og munaði meira en fjórum milljónum atkvæða samtals á frambjóðendunum tveimur. Sigur Lula er óvæntur því Bolsonaro hlaut flest atkvæði í fyrri umferðinni þann 4. október og hafði verið með forystu samkvæmt skoðanakönnunum síðustu vikurnar. Er þetta í fyrsta skipti sem frambjóðanda sem tapaði fyrri umferð kosninga tekst að snúa úrslitunum sér í vil í síðari umferðinni. „Lengi lifi lýðræðið“ Í ræðu þegar úrslitin voru ljós þakkaði Lula stuðningsmönnum sínum sem hann sagði hafa bjargað lýðræðinu í landinu. Þá nefndi hann sérstaklega ungt fólk, konur og kennara sem hann sagði vera á bak við sigurinn sem og verkamenn sem barist hafa fyrir styttri vinnuviku. „Lengi lifi lýðræðið. Mitt fjórða kjörtímabil verður það besta af öllum forsetum í sögu þessa lands. Þetta verður það sem ég mun hlusta mest á brasilíska fólkið.“ Lula var forseti Brasilíu á árunum 2003 til 2011 og var svo kjörinn aftur árið 2023. Þar á milli var Jair Bolsonaro, faðir Flavio, forseti landsins frá árinu 2019 til 2023. Kosningateymi beggja frambjóðenda óskuðu eftir lengri kjörfundi Flavio Bolsonaro var augljóslega ósáttur þegar hann ræddi við fjölmiðla fyrir utan heimili sitt þegar úrslitin voru ljós í nótt. Hann sagði að skoða þyrfti ýmislegt áður en hægt væri að viðurkenna úrslitin. „Það er ómögulegt að viðurkenna þessi úrslit,“ sagði Bolsonaro um leið og hann kallaði eftir því að kosningarnar yrðu ógildar þar sem „reglum leiksins hefði verið breytt.“ Flavio Bolsonaro var ekki ánægður með niðurstöðu kosninganna.Vísir/EPA Þar vísar hann í ákvörðun hæstaréttar að framlengja kjörfund um tvær klukkustundir sem samkvæmt frétt BBC var óvenjuleg ákvörðun en kosningateymi beggja frambjóðendanna höfðu óskað eftir að kjördeildir skyldu vera opnar lengur en auglýst var. Teymi Lula vegna þess að kjósendur í Sao Paulo og Bahia hefðu ekki komist að kjörstað þar sem almenningssamgöngur lágu niðri en teymi Bolsonaro vegna veðuraðstæðna á ákveðnum svæðum. Gríðarlegur mannfjöldi fagnaði sigri Lula á götum Sao Paulo.Vísir/EPA Kosningar í Brasilíu hafa aldrei áður verið ógildar og greinandi segir í frétt BBC að ólíklegt sé að svo verði nú. Hæstaréttardómarinn Cristiano Zanin, í fjarveru forseta hæstaréttar, tók ákvörðun um lengri opnun kjördeilda en hann er fyrrum lögmaður Lula. Forsetinn, Kassio Nunes Marques, sem var skipaður af Jair Bolsonaro, hefur hins vegar staðfest að ákvörðunin var lögleg. Á myndum frá Sao Paulo má sjá gríðarlegan mannfjölda á götum úti fagna sigri Lula en kjörsókn í kosningunum var mikil og aldrei hefur þeim sem heima sátu fækkað jafn mikið á milli fyrri og seinni umferðar forsetakosninga.
Brasilía Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira