Erlent

Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hann vísaði ekki til neins sérstaks.
Hann vísaði ekki til neins sérstaks. Getty

Donald Trump Bandaríkjaforseti dró í dag úrslit forsetakosninganna í Brasilíu í efa og sagði þær líta út fyrir að hafa verið sviknar. Hann lagði ekki fram nein gögn máli sínu til stuðnings.

Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseti tryggði sér fjórða kjörtímabilið í seinni umferð kosninganna í gær. Hann hlaut 51,79 prósent gildra atkvæða en Flávio Bolsonaro, öldungadeildarþingmaður og sonur fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro, 48,21 prósent. Munurinn var rúmlega 4,4 milljónir atkvæða.

Trump var inntur eftir viðbrögðum við úrslitunum af blaðamönnum í dag.

„Ég tók ekki afstöðu, en þetta leit út eins og enn einar sviku kosningarnar,“ sagði Trump samkvæmt Reuters.

Hann sagði að kosningar yrðu að vera þannig úr garði gerðar að ekki væri hægt að deila um niðurstöðuna.

„Þetta leit mjög illa út fyrir mér,“ sagði forsetinn.

Bolsonaro vill ógilda kosningarnar

Flávio Bolsonaro hefur sjálfur neitað að viðurkenna ósigur sinn og hyggst fara fram á að niðurstaða kosninganna verði ógilt.

Hann hafði farið inn í seinni umferðina með forskot eftir fyrri umferð kosninganna. Þar fékk Bolsonaro 47,03 prósent atkvæða en Lula 45,16 prósent. Lula sneri hins vegar stöðunni við í seinni umferðinni.

Jair Bolsonaro, faðir Flávio og fyrrverandi forseti Brasilíu, var náinn bandamaður Trump þegar þeir sátu báðir við völd. Trump-stjórnin studdi jafnframt Bolsonaro-fjölskylduna með áberandi hætti í aðdraganda kosninganna.

Sigur Lula kom mörgum á óvart. Bolsonaro leiddi naumt í könnunum fyrir kjördag. Lula hlaut að endingu 64,3 milljónir atkvæða gegn 59,8 milljónum Bolsonaro.

Diplómatar höfðu óttast þetta

Reuters greindi frá því fyrir kosningarnar að erlendir sendiherrar í Brasilíu hefðu rætt sín á milli um að viðurkenna sigurvegara kosninganna eins hratt og unnt væri eftir að opinber úrslit lægju fyrir.

Ástæðan var meðal annars ótti við að Trump eða Javier Milei Argentínuforseti myndu draga sigur Lula í efa yrðu úrslitin naum.

Einn sendiherranna sagði þá við Reuters að það kæmi honum ekki á óvart ef Trump eða Milei lýstu Bolsonaro sigurvegara áður en brasilísk kjöryfirvöld hefðu lokið talningu. Annar sagðist treysta brasilíska kosningakerfinu en að mikilvægt væri að viðurkenna niðurstöðuna hratt.

Yfirkjörstjórn Brasilíu lýsti Lula réttkjörinn forseta að lokinni talningu í gærkvöldi. Rúmlega 128 milljónir kjósenda greiddu atkvæði og kjörsókn var tæplega 81 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×